Skýrslur um landshagi á Íslandi - 01.01.1875, Blaðsíða 562
550
UM FJÁRHAG ÍSLANDS.
J>annig er hið fyrsta reikníngsyflrlit lagað, sem komið heflr
frá stjórnarinnar hendi síðan fjárhagsaðskilnaðurinn varð, og mætti
kannske segja margt um það, bæði hvað tilhögun og efni snertir,
en það leiðum vér hjá oss á þessum stað, en viljum þar á móti
gjöra nokkrar athugasemdir við tekjurnar og útgjöldin yflr
höfuð.
Yfirlitið segir að tekjurnar hafi alls verið 97,053 rd. 16 sk.,
og útgjöldin alis 91,072 rd. 79 sk , og ætti þá eptir því að vera
í sjóði við lok reikníngsársins 5,980 rd. 33 sk. ; en þetta er ekki
svo í raun og veru, eins og nú skai sýnt; því taki maður tekjurnar
fyrir, og sé frá þeim dregnar óborgaðar lekjur, sem taldar eru
15,402 rd. 12 sk., þá verða tekjur þær, sem á árinu hafa verið
borgaðar, ekki nema 81,651 rd. 4 sk.; og sömuleiðis, ef frá útgjöld-
unum eru dregnir þeir 4,450 rd., sem yfirlitið telur sem skuld til
hjálparsjóðsins, þá verða hiu verulegu útgjöld ekki nema 86,622
rd. 70 sk., og vill þá i raun réttri vauta 4,971 rd. 75 sk. á að
tekjurnar jafni sig móti útgjöldunum, eða með öðrum orðum , að
svo mikið helir orðið at taka úr sjóði þeim, sem var fyri hendi í
jarðabókarsjóðnum. J>etta er nú að voru áliti mjög svo villandi, og
kemur til af því, hvernig formið hefir verið haft á reikníngs-
yfirlitinu.
Allt á aðra leið verður þetta þar á móti, þegar talið er bæði
tekjur þær allar, sem hefðu átt að vera borgaðar, og sömuleiðis
með útgjöldin, nefnilega að þar væri einnig talið það, sem ekki hefir
verið tekið en þó átti að gjalda út, því þá kemur það t'ram, að
tekjur hafa á árinu atls verið 96,968 rd. 69 sk. en útgjöld þar
á móti 87,038 rd. 27 sk., og afgángurinn, eða það sem hefði mátt
leggja til hjálparsjóðsins, hefði þá orðið 9,930 rd. 42 sk. Til þess
að skýra þetta betur, skulum vér hér, eptir bendíngum þeim, sem
gefnar eru í athugasemdum stjórnarinnar við yfirlitið, sýna hvernig
tekjur og úlgjöld íslands í raun og veru hafa verið á reikníngs-
árinu 187’/t-a, borið saman viö áætlunina fyrir sama ár, og verður
þaö þá á þessa leið, að tekjurnar hafa verið: