Skýrslur um landshagi á Íslandi - 01.01.1875, Page 815
1871-72.
VERZLAN A ÍSLANDI.
803
Af brauði (hveitibrauði allskonar og svartahrauði) var aðflutn-
íngurinn á báðum þessum árum, einkum árið 1871, nokkuð meiri
en árið 1870, því árið 1871 fluttust til alls landsins 228235 pund,
og árið 1872: 210301 pund (smbr. V.. bls. 423). Mest hefir á
þessum árum verið flutt af þessari vörutegund til Suður-umdæmis-
ins, eða nær því eins mikið og til beggja hinna umdæmanna að
samtöldu, nefnilega árið 1871: 115421 pund og 1872: 98013 pund,
en minnst til Norður- og Austur-umdæmisins. Eins og um undan-
farinn tíma hefir á hvoru þessara ára um sig verið tlutt miklu minna
til landsins af svartabrauði en af hveitibrauði, nefnilega árið 1871
ekki nema 17948 pund móti 210287 pundum, og árið 1872: 13223
pund móti 197078 pundum.
Aðflutníngurinn af allskonar ölfaunguin (brennivíni, rommi,
púnsextrakt, vini, kryddvini, miði og bjór) hefir á þessum árum
farið töluvert í vöxt, því þar sem til alls landsins árið 1870 fluttist
481550 pottar (smbr. V., bls. 424), þá var aðflutníngurinn árið
1871: 639274 pottar og 1872: 692499 pottar, og er þetta, einkum
hvað árið 1872 snertir, ekki lítill vöxtur, þar sem það nefnilega á
þeim tveim árum frá 1870 til 1872 verður 43.9 af hverju hundr-
aði. Eins og að undanförnu hefir aðflutníngurinn á þessum árum
verið láugmestur til Suður-umdæmisins, nefnilega árið 1871:
324933 pottar og 1872: 296613 pottar, en minnst til Vestur-um-
dæmisins, eða ekki nema 102009 og 160384 pottar, og er því
hiutfallið milli umdæmanna líkt og það hefir verið hin síðustu ár,
Hið sama verður einnig ofan á, þegar maður skoðar hverja tegund
ölfánga þeirra, sem hér eru taiin, nefnilega að mest hefir verið
llutt til Suður-umdæmisins, og á þetta sér einkum stað um bjór,
þar sem á hverju þessara ára hefir af þessari tegund verið Ðutt til
Suður-umdæmisins eins rúmlega eins mikið og til beggja hinna
umdæmanna að samtöldu, nefnilega árið 1871: 22656 pottar af
42095 pottum til alls landsins, og árið 1872: 28200 pottar af
49888 pottum.
Einnig af kaffebaunum hefir aðflutníngurinn á þessum tveim
árum farið vaxandi síðan árið 1870, því þetta síðast nefnda ár
fluttust til alls landsins ekki nema 402956 pund (smbr. V., bls.