Skýrslur um landshagi á Íslandi - 01.01.1875, Page 816
804
VERZLAN Á ÍSLANDI.
1871-72-
424) , en árið 1871 fluttust 428087 pund og árið 1872: 408577
pund. Hlutfallið milli umdæmanna heflr einnig á þessum árum
verið hið sama og áður heflr átt sér stað, nefnilega að lángmest
heflr verið flutt til Suður-umdæmisins, eða nær því eins mikið
(árið 1872) og jafnvel meira (árið 1871) en til beggja hinna um-
dæmanna að samtöldii. Af kafferót fluttist árið 1871 nokkuð
minna og árið 1872 töluvert meira enn árið 1870, nefnilega 1870:
144852 pund, 1871: 138332 pund og 1872: 158751 pund; en
hlutfallið milli umdæmanna er hið sama og áður heíir verið, það
er að skilja að til Suður-umdæmisins eins hefir verið flutt töluvert
meira en til beggja hinna umdæmanna að samtöldu. I>ar á móti
var aðflutníngurinn á sjokólade árið 1871 mestur til Norður- og
Austur-umdæmisins, nefnilega 4464 pund af 9671 pundum til alls
landsins; en árið 1872 var mest flutt af því lil Suður-umdæmisins,
eða 3445 pund af 8817 pundum til alls landsins. Tegras fluttist
einnig mest til Suður umdæmisins á báðum þessum árum, nefni-
lega árið 1871 af 1259 pundum til alls landsins 601 pund, og árið
1872: 560 pund af 1254 pundum, sem á því ári lluttust til alls
larulsins.
Af allskonar sykri fluttust árið 1871 samtals til alls íslands
550,462 pund og árið 1872 alls 608,949 pund, og er þetta á báð-
um þessum árum töluvert meira enn árið 1870 (þá var það ekki
nema 500,109 pund, smbr. V., bls. 425), en af þessum aðflutníngi
var á báðum árunum lángmest flutt til Suður-umdæmisins, nefni-
lega árið 1871: 264,248 pund, og árið 1872: 265065 pund; hlut-
fallið milli umdæmanna er þá enn mjög líkt því, sem það hefir verið
hin síðustu árin (smbr. IV., bls. 622 og 864, og V., bls. 136 og
425) . Á þessum árurn var, eins og að undanförnu, láugmest flutt
til landsins af kandíssykri, nefnilega af hvoru um sig nær því eins
mikiö og af báðum hinum svkurtegundunum (hvítasykri og púður-
sykri) samtöldunr. Aðflutníngurinn af sírópi, sem hér einnig má
tclja, hefir á þessum árum verið töluvert minni en árið 1870; á
því ári fluttist nefnilega til alls landsins 19,001 pund, en árið 1871
fluttust einúngis 11,407 pund, og árið 1872 ekki nema 9012 pund,