Eimreiðin - 01.01.1945, Blaðsíða 50
'EIMHEIÐIN
ísland 1944.
STUTT YFIRLIT.
VEÐRÁTTAN á árinu 1944 var yfirleitt liagstæð. Þegar á allt
er litið mun vera réttniætt að skipa þessu ári á bekk með góð-
ærum. Vetur frá áramótum var að vísu skakviðrasamur og all-
snjóþungur á köflum. Einkum var orð á því gert, að snjór væri
mikill á hálendinu. 1 því sambandi má geta þess, að fönnin í
Gunnarsskarði á Esju livarf ekki með öllu í sumar, þrátt fyrir
mikla leysingu í ágúst og september. Vorið var frernur kalt og
gróður síðbúinn. Sumar var hins vegar ágætt. Grasspretta var sæmi-
leg og nýting óvenjulega góð. Vetur til nýárs var fremur mildur
og víðast snjóléttur. Meðalhiti ársins var í Reykjavík 5,0 st., og
er það 1,1 st. yfir meðallag. En meðalhiti í júlí var 13 st. eða
2 st. yfir meðallag. Á Akureyri var ársliitinn 3,7 st. eða 1,4 st.
vfir meðallag. Úrkoma var 769 mm. í Reykjavík, en meðalúrkoma
er þar 870 mm.
LANDBÚNAÐURINN var rekinn með sama sniði og áður og
engar róttækar byltingar um að ræða í þeirri atvinnugrein. Öllu
betur gekk að fá kaupafólk til landbúnaðarstarfa en sumarið
1943. Þannig fékk Ráðningarskrifstofa landbúnaðarins um 40%
þess fólks, sem beðið var um, en aðeins 32% árið áður. Þess ber
þó að geta í þessu sambandi, að eftirspurn var minni 1944 en
1943, þar sem kaupgjald hækkaði frá sumrinu áður. Reyndu því
margir bændur að bjargast á eigin spýtur. Kaup karla var al-
gengast kr. 275—300 og kvenna kr. 150—175 um vikuna. Töðu-
fengur varð með meira móti. Þótt gras sprytti seint víða, gáfu
bæði tún og engjar óvenjulega góða uppskeru að lokum, auk
þess sem hey nýttust yfirleitt vel.
Sauðfé var mjög vænt baustið 1944. Meðalþungi sláturdilka
varð 14,32 kg. eða næst liæstur síðan 1934, að tekið var að safna
skýrslum um meðalfallþunga dilka. Slátrað var 333,673 dilkinn
(1943: 412,577) og 39,263 fullorðins fjár (1943: 71,256). Kjötmagn