Eimreiðin - 01.01.1945, Blaðsíða 51
eimreiðin
ÍSLAND 1944
31
'arð um 5600 tonn (1943: 6865 tonn). Hafa verður í liuga, eins
°g við fyrri ársyfirlit, að tölurnar fyrir síðasta ár sýna bráða-
birgðatalningu, en tölurnar í svigum, fyrir árið á undan, fulln-
aðartalningu. Það, liversu miklu minna er slátrað liaustið 1944
en 1943, mun einkum stafa af meiri ásetningu síðara haustið
vegna betri heyfengs, og einnig mun liafa verið gengið nokkuð á
sjálfan sauðfjárstofninn liaustið 1943. tJt voru flutt um 1730 tonn
^jöts af framleiðslu ársins 1943 fyrir um 10,7 millj. kr. (1943: f.
Uni 10,5 millj. kr.), en af framleiðslu ársins 1944 liefur ekkert
enn verið flutt út, þegar þetta er ritað. Af öðrum útfluttum
'andbúnaðarafurðum má nefna gærur, saltaðar og sútaðar, fyrir
4’5 niillj. kr. (1943 f. 5,3 millj. kr.), hreinsaðar garnir fyrir
rúinl. 0,5 millj. kr. (1943 f. rúml. 0,5 millj. kr.) og osta fyrir
^25 þns. kr. (1943 f. 192 þús. kr.). Ull af framleiðslu síðasta árs
hafði ekki komið á útflutningsskýrslur um síðustu áraraót. Loks
'ná nefna skinnavörur: 1447 refaskinn f. 361 þús. kr. og 1753
•ninkaskinn f. 169 þús. kr. og skinn, söltuð, rotuð og liert, f.
nál. 1 millj. kr.
GarSrœktin var með meira móti og kartöfluuppskera allmiklu
meiri en 1943 eða áætluð um 80,000 tn. (1943: 55,000 tn.). Þó
Vantar enn mikið á, að Islendingar rækti nægar kartöflur til inn-
•nilandsnotkunar. Rófnarækt var rnjög léleg, mest vegna kál-
flngunnar, sem enn gerir mikinn usla í görðum.
•larðabœtur hafa verið svipaðar og árið 1943. Unnið var að
skurðgrefti í Innri-Akraneshreppi. Er áætluð lengd skurða þar
^192 m. og greftinum að mestu lokið. Ennfremur var unnið að
jarðabótaframkvæmdum í Staðarbyggðarmýrum og
í Eyjafirði og víðar. Hafinn er undirbúningur að
stöfnun sveitaþorps að Egilsstöðum á Völlum, og unnið var að
'irkjun Fljótaár í Stíflu í Fljótum, o. s. frv.
Kornrœktin var rekin með sama sniði og áður að Sámstöðum
1 ^ljótshlíð. Af kornökrunum þar, sem eru nú 6,364 ha., fengust
J20 ln- bygg og haFrar, en auk þess liefur bygg verið ræktað á
stöðum norðanlands og um 30 stöðum sunnanlands. Var á
árinu 1944 sáð byggi í rúma 16 ha. á öllu landinu, af útsæði frá
^amstöðum.
sams konar
Svarfaðardal
SJÁVARÚTVEGURINN. Fiskaflinn varð öllu meiri en næsta