Eimreiðin - 01.01.1945, Blaðsíða 27
eimreiðin
SIGRÚN PÁLSDÓTTIR BLÖNDAL
liún unni lienni ekki síður en móður sinni, og hætti þessi
góða kona þeim systkinum að nokkru leyti föðurmissinn. Með
Sigrúnu og Guttormi ólst upp frændi þeirra, Páll Ólafsson, nú
bóndi á Arnaldsstöðum, og fleira var þar oft unglinga, vanda-
lausra, enda heimilið jafnan mannmargt.
Sigrún var á átjánda árinu, þegar hún fyrst lagði af stað úr
móðurgarði í menntaleit. Aldamótaárið fór liún á ICvennaskólann
í Reykjavík, og útskrifaðist hún þaðan. Hafði hún frá barnæsku
'erið námfús með afbrigðum, enda óvenjulegar gáfur gefnar.
ður en hún fyllti fyrsta áratuginn kunni hún þegar eitthvað í
erlendum málum, og um fermingaraldur réðist hún á Höfuð-
strauma eftir Georg Brandes á frummálinu og taldi sig hafa lesið
bókina sér til gagns, og er sú bók þó ekki talin barna meðfæri.
Á orið 1905, 22 ára, hrá Sigrún sér til Iv.hafnar á námsskeið í
heimilisiðnaði, en livarf heim aftur samsumars og dvaldi á æsku-
heimili sínu, þangað til þær mæðgur vorið 1907 fluttu að Mjóa-
'iesi, eignarjörð Elísabetar. Voru þær þar í tvö ár eða þangað til
Guttormur Pálsson var skipaður skógarvörður að Hallormsstað
'orið 1909; þá fluttu þær til hans, og var Sigrún fyrir búinu hjá
bróður sínum fyrstu tvö árin, en um vorið 1911 sigldi liún til
Danmerkur á nýjan leik og nú til lengri dvalar. Stundaði hún
nam 'ið lýðháskólann í Askov tvo vetur og einnig eitthvað að
sumarlagi, en dvaldi þess á milli hjá skólasystur sinni einni á
búgarði föður hennar.
Eftir heimkomuna frá Danmörku var Sigrún ýmist á Hallorms-
»tað eða hjá náfrænda sínum, Björgvin sýslumanni Vigfússyni á
Efra-Hvoli, hálfbróður Páls föður hennar, eu til þessa sonar
sni8 hafði móðir hans, Guðríður, fóstra Sigrúnar, flutzt vorið
1905, er liann sat á Höfðabrekku. Liðu svo nokkur ár.
Sigrún hafði á þessum árum þroskast svo sem fremst verður
á kosið, og dró nú óðum að aðalatburðunum í lífi liennar. Árið
1918 giftist liún Benedikt Blöndal, sem þá var kennari við bún-
aðarskólann á Eiðum og liafði verið í 10 ár; voru þau hjón mjög
jafngömul, og stóð brúðkaup þeirra að Hallormsstað á 35. afmælis-
degi Benedikts, 10. ágúst. Munu flestir sem til þekkja líta svo á,
að sjaldan liafi valizt í hjónaband samhentari maður og kona:
bæði inikilhæf og með afbrigðum skemmtileg, bæði full af eld-
legum og þó ístöðugóðum áliuga fyrir ýniiss konar þjóðþrifa-