Ægir - 01.04.1912, Page 4
44
ÆGIR.
Menn eru því að reyna að komast
hjá þvi að nota norsk hrogn.
Frá öllum hliðum hefi jeg komist að
því, að Bretar hafa betri tunnur en Björg-
inarmenn: tunnustaflrnir eru þykkari og
bretskar tunnur hafa fyrir utan trjegjarð-
irnar járngjarðir á báðum endum, sem
kemur í veg fyrir leka, og skemdir í
ílutningi.
Þjóðverjar hafa einnig komist upp á
að verka hrognin vel og þeir selja þau að
mun ódýrara en Norðmennirnir.
Þýsk og bretsk hrogn eru ætið boðin
að minsta kosti 5 frönkum lægra en þau
eru talin standa í Björgvin. Þetta eflir
auðvitað markað þeirra.
Samkvæmt tilkynningu frá meðlim
fjelags franskra hrognkaupmanna, hefur
fjelagið samið um við norska hrognút-
flytjendur, að einungis heldar tunnur
(»barils étanches«) megi flytja til Frakk-
lands, þvi að franskir kaupendur eigi að
hafna öllum tilboðum um óheldar tunnur,
en norskir seljendur eigi að neita að selja
slíkar lunnur.
Frumvarp til laga
um
einkarjett og einkaleyfi til kolasölu á íslandi.
1. gr. Frá i. janúar 1913 áskilur landið sjer
fyrst um sinn einkarjeft til kolasölu á íslandi og í
landhelgi við ísland. Er því öllum, bæði einstök-
um mönnum og flelögum, bannað að flytja kol til
íslands, eða geyma, selja, afhenda eða á annan
hátt úthluta kolum í landhelgi við ísland, nema
samkvæmt því, er lög þessi leyfa.
Ráðherra íslands veitist heimild til þess, að
gera samning við kolanámufjelagið N. N. um einka-
leyfi til kolasölu hjer á landi og hjer við Iand með
eftirfarandi nánari skilyrðum.
2. gr. Kolanámufjelaginu N. N. veitist einka-
leyfi til að flytja inn kol til íslands, og versla með
þau þar og í landhelgi við ísland. Þó er dönsku
flotamálastjórninni heimilt að flytja inn kol, sem
eingöngu eru ætluð dönskum herskipum og varð-
slcipum. Svo er og þeim, sem keypt hafa kol af
leyfishafa hjer í landi, heimilt að selja þau aftur til
notkunar í landinu eða á innlendum skipum. Loks
leyfist og innlendum gasstöðvum að selja í landinu
kokes, er þær hafa framleitt, sbr. einnig 16. gr.
3. gr. Leyfishafi skal vera skyldur til að hafa
nægar birgðir af kolum þeim, sem nefnd eru í 4.
gr. þessara laga og þar eru kölluð „almenn kol“, á
þeim stöðum, sem tilgreindir eru í 5. gr. Nægð
birgðanna miðast við kolaeyðsluna árið áður, hafi
hún hvorki verið óvenjulega mikil eða lítil, en ef
fyrirsjáanlegt er, að kolaeyðslan hljóti að verða
meiri á einhverjum stað vegna nýrra eða aukinna
atvinnufyrirlækja, þá er einkasali skyldur til að hafa
birgðirnar að því skapi meiri. Skal hann sjerstak-
lega birgja þær hafnir upp á haustin, svo að nægi
fram á næsta sumar, sem hættast er við, að teptst
geti sigling til af ís, og má hann kjósa um það, að
fiytja allar birgðirnaf til hverrar hafnar í einni ferð
eða fleirum.
4. gr. Kol þau, sem leyfishafi flytur til íslands,
og hefur þar venjulega til sölu („almenn kol“), skulu
vera Rosslyn Hartley kol, eða önnur kol jöfn þeim
að gæðum, svo sem East Lothian Ordinary eða
Lochgelly. Auk þess skal hann flytja inn aðrar
kolategundir, sem menn kunna að fala hjá honum.
Smíðakol er houum skylt að hafa til sölu, en rjett
er að hlutaðeigendur tilkynni leyfishafa, hve miki^
smfðakol muni|þurfa á hverjum sölustað, og verður
þessi tilkynning að vera komin á skrifstofu leyfis-
hafa f Reykjavik I. júlí ár hvert. Innan sama tíma-
marks verða að vera þangað komnar pantanir á
kokes, anthracite kolum og hverjum öðrum kola-
tegundum, sem menn vilja fala sjerstaklega, og
senda þarf ásamt hinum almennu kolum. Öll kol,
er hann lætur af hendi, eiga að vera sálduð (hörp-
uð), nema smíðakol og sjerstök gaskol.
5. gr. Söluveið á „almennum kolum" skal vera
fast ákveðið til manna, sem búsettir eru í landinu
sjálfu, til innlendra skrásettra fiskiskipa, póst- og
mannflutningaskipa, sem sigla eftir föstum ferða-
áætlunum. Verð það, sem tilgreint er við hvern
sölustað f þessari grein, skal leggju til grundvallar
fyrir söluverði kolanna eftirleiðis. Þetta verð má
aldrei vera hærra, þegar innkaupsverð á „almenn-
nm kolum", fluttum ókeypis á skip á sölustaðnum
í Skotlandi, er eigi hærra en það var um miðjan
júlí 1911, og flutningsgjaldið er eigi hærra en það
var þá.
Sölustaðirnir eru: