Ægir - 01.11.1913, Side 6
126
Æ G I R
„Einarshöfn".
»Ægir« vill með fáum orðum minast
hafnarvirkja nokkurra, er hal'. verið
byrjuð við Skerjafjörð innanverðan, neð-
an undan Eskihlíð. Það eru Englend-
ingar sem að sögn hafa lagt peninga í
fyrirtækið.
Síðla vetrar komu verkfræðingar hing-
að frá Englandi til þess að mæla dj7pi
á Skerjafirði og athuga staðhætli aðra,
og eftir að þeir liöfðu látið í ljósi álit
sitt, hefur þessi byrjun verið gerð. Síðan
snemma sumars hafa því nokkrir menn
starfað að þessu verki og er það komið
svo langl áleiðis sem nú skal greina:
Utan'vert við svo kallaðan »Kýrhamar«
sem er móhergssnös á að gizka 10 metra
á hæð, um 300 metrum norðar, hafa
verið reknir niður um 60 ferhyrndir
staurar, um 20 cm. á hlið. Staurar þessir
eru úr góðri ameriskri furu og mjög
sterkir. Þeir eru reknir niður til þess,
að mynda bryggju sem verður um 7
metrar á breidd, og er nú orðin um 70
metra á lengd, en þarf að líkindum að
vera c. 120 metra löng svo hægt sje að
leggja þar að botnvörpuskipum eða stærri
þilskipum. Stauraraðir þessar eru litt
skeyttar saman enn þá og enginn bryggju-
flötur lagður, en efni virðist jjrotið, svo
likindi eru lil að vcrkinu sje hætt f'yrst
um sinn. Skúr fyrir smíði og geymslu
smíðaverkfæra, hefur verið reistur á bakk-
anum ofanvert við bryggjusporðinn,
annars hafa ekki verið gerð þar önnur
mannvirki nema nokkrar steinahrúgur
slanda þar, sem kastað liefur verið sam-
an, og siðar meir eiga að vera efni í
verkunarreiti fyrir fisk eða þ. 1.
Þessi eru mannvirki þar nú.
Nú er spurningin, til hvers hefur þetta
verið gert, og þá er svarið að eins að
finna i skýringu sem staðið hefur hjer i
blöðum, (og enskum), um svokallaða
»Port Reykjavík« og menn setja i sam-
band við Einar Ren. Þar er gefið i skvn
að hjer eigi á næstu árum að rísu ný
borg úr rústum, með miklum og skraut-
legum byggingum kirkjum, bönkum og
öðrum stórhýsum — hafnarvirkjum og
stórum skipastól, sem sökum staðhátta
og legu á hnettinum — nær Rretlandi
en Reykjavík, — muni verða keppinautur
höfuðstaðarins, og að lokum gleypa hann.
Það virðist vera nokkuð sem rnælir með
þvi að byggja hjer liorg, því landslag er
mjög fallegt, hallast mót sól og' víðálta
talsverð; það virðist fremur ástæða til
að ætla að hjer eigi að rísa upp ein-
hvernskonar iðnaðarhær, fremur en fiski-
og siglingabær, þvi staðurinn virðist
snauður af öllum tækjum lil fiskþurk-
unar, grjóti o. II., einnig er innsigling
torveld, l>æði skerjótt og grunn. svo við
])að fellur hugmyndin nokkuð í gildi til
þess að hægt sje að búast við að þetta
gerist á skömmum tíma.
Enn fremur er ishælta hjer mikil i
hörðum vetrum, miklu meiri en jafnvel
nokkursstaðar annarsstaðar hjer sunnan-
anlands, og hlýtur það að hafa talsverl
slæmar afleiðingar.
Þetta mannvirki sem þarna er byrjað
er vel gert, en manni fmst að öllu at-
huguðu, að sæmra hefði verið að byrja
það annarsstaðar, og að j)eir menn sem
að eins af stundarhag eru að gynna út-
lenda fjesýslumenn lil að leggja fje í
slíka hættu eins og hjer virðist vera,
vinni óþarft verk fyrir alla hlulaðeig-
endur. Eðlilegt er að landeigendur, lrjer
sem annarsstaðar, geri all lil að bæta
land sitt, en fjárvana skjákrummar, sem
fara land úr landi í fjárbónum í vafa-
söm fyrirtæki, þeir spilla fyrir löndum
sínum ótrúlega mikið.