Ægir - 01.11.1913, Síða 11
ÆGIR
131
kælirúmum beina leið til sölustaðar-
ins.
Sjerstaklega ber að tilnefna reyktan
þorsk og þyrskling, ílattan i lengjur og
hryggur og uggar teknir burtu, og kall-
ast þessi fiskur Shetland Cod eða »Fil-
letso, en þar að auk er sent mikið af
reyktri ýsu og öðrum fiskitegundum.
Reyktur þorskur er mest eftirspurður,
af þvi hann er beinlaus og þess vegna
þægilegastur til heimilisnotkunar. Aftur
á móti er ýsa minna eftirsótt.
Fiskur þessi er sendur í kössum með
jjappir að innan, og eru liöfð 14 pd.
ensk í hverjum kassa.
Jafnaðarlega er fiskurinn óskemdur
cftir þennan langa llutning, því hann er
saltaður fyrir reykingu svo mikið, að
hann þolir nokkra daga eftir að hann
er kominn a land. Þó hefir það komið
fyrir, að mikið hefir eyðilagst í llutningi,
en oftast hefir ástæðan verið sú, að fisk-
urinn hefir verið sendur um hásumarið,
og ekki þolað hitann og auk þess verið
lluttur með skipum, sem hafa haft marg-
ar viðkomustöðvar á leiðinni.
Það þykir nokkuð ótrúlegt og um leið
nýstárlegt, að fiskur tilreiddur á þennan
hátt skuli vera sendur kringum hálfan
hnöttinn, yfir Miðjarðarlínuna, og vera
svo seldur eftir 7 til 8 vikna ferð með
gufuskipum frá hleðslustaðnum. Það er
aðeins á siðustu 6 árum, að verslun með
þannig tilreiddan fisk hefir lekið þessa
stefnu, og það er útlit fyrir, að innílutn-
ingur aukist með hröðum skrefum ár-
lega.
Hjer er nokkuð fyrir íslendinga að
laka til athugunar í framtíðinni.
Mikill atli.
Mestur alli, sem menn hafa fengið á
hotnvörpuskip í einum »túr«, er það,
sem skip frá Hull tilheyrandi útgerð
Pickerin & Ilaldan fjekk fyrir norðan
Þrumsey i Noregi nú í haust á örstult-
um tima. Aíli þessi, sem var mest koli,
seldist fyrir um £ lfiOO eða hjer um hil
28000 krónur.
Fiskveiðar Englendinga 1912.
Blautur fiskur fluttur á land á Eng-
landi 1912 hefir numið alls um 14 mill.
640 þúsund vættir (cnt.) og verðmæli
aflans orðið £ 8,884,000 eða um 160
mill. 120 þús. krónur.
Fiskur aflaður af hotnvörpu- og línu-
skipum hefir numið samtals 8,749,591
vætt. og verðmæti alls þess afla verið
hjer um I)il £ 7 mill. eða um 136 mill.
króna.
Þessar fiskitegundir hafa aflast mest:
Síld 5.377.141 vætt. (cnt.) £ 1.664.724
Þorskur 2.486.762 — — - 1.448.269 ■
Ýsa 1.972.338 — — - 1.350.188
Koli 834.271 — — - 1.051.016
Til veiða gengu 2.245 botnvörpuskip
og 5.076 seglskip og bátar, og höfðu
samlals 44.704 menn atvinnu við veiði-
skap á þessum skipastól.
Fiskiveiðar Pjóðverja.
Það er alkunnugt, að á síðari árum
auka Þjóðverja fiskiflota sinn mjög mik-
ið, og einkum leggja þeir mjög mikla
áherslu á að auka útllulning á saltfiski.
Harðfisk- og þurkunar-verksmiðjan i
Geslemiinde hefir stækkað i þeim til-
gangi að geta fært út kvíarnar hefir fje-
lag það, sem rekur Jiessa verksmiðju,
keypt mjög mikið land og bætt við höf-
uðstól sinn 600.000 mörkum.
Það er ekki einungis nýr fiskur, sem
keyptur er til að salta og þurka, heldur
hafa þeir upplagsstöð á íslandi, hvar
þeir leggja fiskinn á land á vetrum og
flytja svo til Geslemiinde til að þurka.
Það er einkum þorskur og nokkuð langa