Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1916, Blaðsíða 11

Ægir - 01.10.1916, Blaðsíða 11
ÆGIR 131 koma festum á «John« og hjeldu því næst á stað með hann til Seyðisfjarðar. Kom þá að enskur vopnaður togari og ljet herskipið hann vísa leiðina til Seyðis- fjarðar. Komu skipin hingað kl. 9 á mánudagskvöld og varð uppi fótur og fit er til þeirra spurðist í íirðinum. Þótti all- nýstárlegt að sjá ljós þau er skipin brugðu yfir höfnina og bæinn, því þau voru svo björt að varla mátti í horfa. Skiluðu þau »John« hjer inn á móts við hafnarbryggj- uua og fóru síðan aftur. Herskipið hjet »Chongwinale« rúmar 20 þús. smálestir að stærð. Er það miklu stærra en nokkurt skip er hjer hefir áður komið. Foringinn á því heitir H. Broch- lebank. Togarinn hjet »Robert Smith«. Mjög rómar Christensen skipstj. það, hve Englendingar hafi sýnt mikinn áhuga, dirfsku og ró við björgunina, og telur foringjann á »Chongwinale« hafa stjórn- að svo stóru skipi í stórviðrinu af frábærri snild, og viðtökurnar um borð í herskip- inu kveðst hann ekki getað lofað nóg- samlega. Ýmsar tröllasögur gengu hjer urn at- burð þenna, þykir þvi rjett að skýra niönnum frá sannleikanum. — Þær get- gátur, að Englendingar hafi ætlað að sökkva »John« eru ekki verðskuldaðar, eins og á þessu sjest, og einnig bendir þetta á, að ýmsar kviksögur, sem um það ganga, hve Englendingar meti lítið mannslífið, sjeu ekki af sem bestum rót- um runnar þó óvinum þeirra þyki slægur í þeim. Á »John« voru als 6 menn, og þar sem þrjú stór hei’skip voru heila nótt á ^ex’ði til að reyna að bjarga þessum mönnurn, verða sennilega fáir til að trúa Þvi, að Englendingar meti mannslífið lít- hs, þegar öðru vei’ður viðkomið. »Sele kom hingað á Seyðisfjörð, lá hjer í leyni ljóslaus við bryggju, er her- skipin komu með »John« og laumaðist burt nóttina eftir, án þess að hitta skip- stjórann á »John« því síður að bjóða mönnum hans far heim. Er Christensen minna hrifinn af frammistöðu landa sinna í þessu efni, en Englendinga, og verður tæpast láð það. »Austri«. Hásetavísur Sæmundar Jónssonar á Járngerðarstöðum veturinn 1867. Eftir Brynjúlf Jánsson á Minnanúpi. 1. Finnur þorinn formaður frá Járngerðarstöðum japafora-jó ríður Jóni boi’inn Sæmundur. 2. Þegar halda fleyi fer fram um þorskagrundir, skulu taldir skatnar hjer, er skjómabaldri fylgja’ um ver. 3. Veitir lið með vasklegt fjör vitur Jón i stafni; gefur sniðug gamansvör; Gísla niður stáls er bör. 4. Baugaveitir burðugur á barkaþóftu situr; Gísli heitir Hálfdáns bur, hreysti neytir ótrauður. 5. Eldasunda ötull ver og á barkaþóftu Gestur kundur Ólafs er; ávalt lundu hæga ber. 6. Við er kjörinn andþófsár ungur Jón son Högna allharðgjör og orkuknár álmabör að vexti smár. 7. Haukakvíslum afl ber í arfi Mattiasar,

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.