Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1916, Blaðsíða 12

Ægir - 01.10.1916, Blaðsíða 12
f 132 ÆGIR andófsstundan iðkar frí ungur Gísli hugarfrí. 8. Brynjólf Jónsson seggir sjá sitja í fyrirrúmi; sónar- kynja leirga -lá lætur dynja vörum frá. 9. Firðar líta fleinavið i fyrirrúmi lika, Guðmund nýtan Guðmunds nið, garp ei þrýtur hæglyndið. 10. Miðskipsdrengur Magnús er mögur Jóns ókvíðinn; glaður mengi gaman tjer, um gedduengi vaskleik ber. 11. Enn er Gunnar aldraður ólafsson miðskipa; ráðum unnir röggsamur að röskleik kunnur liðsmaður. 12. Grímur arfi Guðmundar garpur ör og fljótur á það starf að ausa far, ekki þarf að fría par. 13. Hlynur gefni hvarmdaggar hinn i austurrúmi Þorkels hefnir Þorsteinn snar, þorska efnir veiðarnar. 14. Vigfús situr Vigfús bur, valinn fjelagsdrengur, uppi’ á bita öflugur, ötull, vitur, geðspakur. 15. Vænn unglingur metast má Magnús Jónsson Bergmann; hálfdrættingur hermist sá happaslingur bita á. 16. Öðling hæða alla þá annist mildilega landi bæði og legi á. Lykta kvæði þar með má. Athugasemd. Grein sú, sem hjer er prentuð eftir »Austra«, er ekki til þess að fylla Ægir með einhverju, hún er sett til að sýna hvað Bretar meta mannslífið, hvernig sem stendur á og hver sem í hlut á. Það er svo margt, sem vantar til þess að sú hugsun sje nógu sterk hjá oss og það sýnir sig ljósast og best, hve lítið er að gjört til að forðast slys á sjó. — Það er ekki nóg að láta prenta heila laga- bálka, sem enginn sldlur og enginn fer eftir þar sem eftirlitsleysið er eins og það er. Hjer verður eitthvað að gjöra sem dug- ar, til þess að koma í veg fyrir hinar mörgu drukknanir, sem * eru það tiðar, að þjóðin þolir það ekki til lengdar, þótt eigi væri á annað að líta. Heima. Ráðunautur hr. Matth. Ólafsson er nú (26/w), að búa sig í ferð austur í Selvog og fer um leið að likindum til Eyrarbakka og Stokkreyrar og máski viðar. Vjelfræðingur hr. ól. Sveinsson heldur nú námskeið á ísafirði; næsta námskeið verður haldið í Reykjavík. Skipskaðar fara nú að verða tíðir. í þessum mán- uði sökk »Skallagrímur« eign h./f. Kveld- úlfs hjer á Reykjavikurhöfn. »Resolute« (Duus) strandaði í Grinda- vík, og »Mars« hið góða gamla skip, strandaði við Gerðahólma innanvert við Garðskaga. Um atvik eða orsakir til hins mikla tjóns sem þetta er og hefur í för með sjer, getur »Ægir« ekki skýrt frá. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.