Ægir - 01.10.1917, Page 10
142
ÆGIR
er að vernda og efla verslun, iðnað og
siglingar á þann hátt, sem nánar er tekið
fram í lögum þessum.
3. gr. Ráðið skipa 7 fulltrúar, er kosn-
ir eru til 3 ára. 1918 skulu 3 ganga úr
ráðinu eftir hlutkesti og 1919 ganga 2 úr
eftir hlutkesti af þeim 4, er kosnir voru
1917. Úr þvi ganga fulltrúar eftir kjör-
aldri úr ráðinu. — Ennfremur skulu
kosnir 2 varafulltrúar og gildir kosning
þeirra til 3 ára.
Verði sæti autl í ráðinu milli kosninga,
skal hinn fyr kosni varafulltrúi taka
sæti í ráðinu, þangað til næsta kosning
fer fram, og sé þá enn nokkuð eftir af
kjörtíma hins fráfarna, skal kjósa fulltrúa
i hans stað fyrir það sem eftir er aí
kjörtímanum.
Heimilt er að endurkjósa fulltrúa í
ráðið.
Fulltrúarnir bera allir sameiginlega á-
byrgð á gerðum og eignum ráðsins.
4. gr. Kosningarrétt til ráðsins hafa
þeir kaupmenn, iðnrekendur, skipaút-
gerðarmenn og forstöðumenn slíkra at-
vinnufyrirtækja, er greitt hafa tillag sitt
til reksturskostnaðar ráðsins fyrir yfir-
standandi ár. Kjörgengir í ráðið eru all-
ir þeir, sem kosningarrétt hafa og bú-
settir eru i Reykjavik eða svo nálægt
hænum, að þeir að staðaldri geti tekið
þátt i störfum ráðsins.
5. gr. Hver hluttaki skal greiða, að
minsta kosti, 50 kr. á ári til reksturs-
kostnaðar ráðsins, og skal tillagið greitt
fyrir aprílmánaðarlok.
6. gr. Kjörstjóri annast um undirhún-
ing kosninga. Hann sér um, að fyrir
júnímánaðarlok séu send eyðublöð undir
kosningar þær, er fram eiga að fara á
árinu. Eyðublöðin skulu send öllum
þeim, er kosningarrétt hafa samkv. 4. gr.
og skal á þeim sjást hve marga fulltrúa
á að kjósa; ennfremur skal þess getið á
eyðublöðunum hverjir sitji eftir í ráðinu.
Iíjósandi endursendi kjörseðilinn lokað-
an og frímerktan til kjörstjóra svo snemma
að hann sé í höndum kjörstjóra fyrir
þann dag, er talning atkvæða fer fram.
Kjörstjóri skal hafa atkvæðakassa, er
sé þannig læst, að í hann verði eigi
komist nema með tveim lyklum, en mjó
rifa sé á lokinu, er hægt sé að stinga
kjörseðlum niður um. Geymir formaður
annan lykilinn að atkvæðakassanum, en
kjörstjóri hinn. Jafnóðum og kjörseðl-
arnir herast lætur hann þá óopnaða nið-
ur í atkvæðakassann.
1. dag októbermánaðar eða næsta virk-
an dag kveður formaður ráðið til íund-
ar og skal þar opna atkvæðakassann og
telja atkvæðin. Aðgang að þessum íundi
hafa allir þeir er kosningarrétt hafa til
ráðsins.
Verði ágreiningur um, hvort atkvæði
sé gilt, sker ráðið úr; þó má fulltrúi al-
drei taka þátt í úrskurði um gildi at-
kvæðis, er varðar hann sjálfan.
7. gr. Verksvið ráðsins er:
a) Að svara fyrirspurnum frá alþingi,
stjórnarvöldum og öðrum um verslunar-
vátryggingar- toll- og samgöngumál og
annað það, er varðar atvinnugreinir þær,
sem ráðið er fulltrúi fyrir. Ráðið skal
einnig af sjálfsdáðum, efþörfþykir, gera
lillögur eða láta i ljósi álit sitt í þessum
efnum.
b) Að vinna að þvi, að koma á festu
og samræmi i viðskiftavenjum.
c) Að koma á fót gerðadómum i mál-
um, er varða þær atvinnugreinir er hér
um ræðir.
d) Að safna, vinna úr og birta skýrsl-
ur um ástand þessara atvinnugreina, eft-
ir því sem föng eru á.
e) Að fylgjast með breytingum á er-