Ægir - 01.09.1920, Side 1
13. á
Ráðningarskrifstofan.
Skýrsla
W Fiskifjelags Islands frá 1. mars—1. júlí 1920.
1 byrjun marsmánaðar tók skrifstofa
þessi til starfa samkv. ályktun Búnaðar-
þings og Fiskiþings 1919.
Var ætlunin sú, að ljetta undir með
þessum hætti fyrir vinnuveitendum og
þeim, er eftir vinnu leituðu og verður
því hjer skýrt frá því hvernig þetta
heppnaðist. Fjelögin lögðu til sinn
öianninn hvort, til þess að annast dag-
leg störf á skrifstofunni, sem Búnaðar-
Qelagið Ijet i tje og var skrifstofutimi
frá kl. 4—5 hvern virkan dag og hann
auglýstur í blöðum hjer, eins og líka var
auglýst í þeim eftir fólki er svo stóð á.
Þessi skrifstofutími var til þess ætl-
aður, að þeir er eftir vinnu spurðu gætu
fengið nöfn sín skráð, skýrðu frá hvar
Þeir ættu heima og hverskonar vinnu
þeir æsktu.
Þeim mönnum eða konum, sem spurðu
eftir sveitavinnu sinti sá maðurinn, er
Búnaðarfjelagið lagði til, en maðurinn
frá Fiskifjelaginu átti við þá, er óskuðu
eftir skiprúmi eða vinnu í sambandi við
átgerð.
Menn þeir er á skrifstofu þessari störf-
uðu á þessu fjögra mánaða tímabili voru
Sigurður Sigurðsson ráðunautur og
Methúsalem Stefánsson fyrir hönd Bún-
: 9-10
aðarfjelags, en frá hálfu Fiskifjelagsins
þeir: Skipstjórarnir Geir Sigurðsson,
Kristján Bergsson og Sveinbjörn Egilson
Sig. Sigurðsson var frá marsbyrjun til
16. maí, þá tók Methúsalem við og ann-
aðist skrifstofustörfin til 1. Júlí.
Geir Sigurðsson var frá marsbyrjun til
1. apríl, er hann varð að hætta vegna
annara starfa. Kristján Bergsson var frá
1. apríl til 15. júní, að hann fór til
Englands, tók þá við Sveinbjörn og var
síðasta hálfa mánuðinn á skritstofunni,
eða frá 16/« til x/t, því 1. júlí hætti fyrir-
tæki þetta, sem kostaði hvort fjelagið
fyrir sig um 1050 krónur eða 2100 krón-
ur als, með árangri þeim, er hjer segir:
151 konur og karlar spurðu eftir alls-
konar vinnu. 25 vinnuveitendur föluðu
fólk. 29 karlar og konur voru ráðin og
12 vinnuveitendur tóku fólk.
Til sveitavinnu komu umsóknir um
14 karlmenn og 46 kvennmenn frá
bændum, en umsóknir verkafólks um
sveitavinnu komu frá 30 karlmönnum
og 6 kvennmönnum. Ráðnir voru 7
karlmenn og 2 kvennmenn =. 9.
115 karlmenn spurðu eftir ýmsri vinnu
við sjó og á sjó, og af þeim hóp voru
ráðnir 20 er sundurliðast þannig: 1 skip-
stjóri, 2 stýrimenn, 1 bátaformaður, 2
matsveinar og 14 hásetar = 20. Það
hefur því kostað fjelögin um 72 kr. að
ráða hvern mann og getur enginn sagt
að þau hafi legið á liði sínu, en hvernig
standi á þvi að af 151 skulu aðeins
ÆGIR.
MÁNAÐARRIT FISKIFJEL AGS ÍSLANDS.
irg.
Reykjavík, september—október 1920
Nr