Ægir - 01.09.1920, Síða 11
ÆGIR
99
sem að þýngd mun láta nærri að sje >/«
af þunga fisksins, því keyptum við 1200
'R af óslægðum fiski með haus og hala,
þá mundi vart fást úr þvi meira til
matarframreiðslu en 800 en 800 í 360.00
eru 45 aurar.
Kjðt saltað í tunnum, var hjer á boð-
stólum i fyrra fvrir 425 kr. hver tunna,
en verð á sild mun aldrei hafa nálgast
það og segja þó þeir, er reynt hafa,
að þeir meti 1 tunnu af saltaðri sild
móti 1 tunnu af kjöti, hvað næringar-
gildi snertir.
Nú er byrjuð hreyfing á að koma
almennri síldar neyzlu á og er slíkt vel
farið, því þegar við hugsum til þess hve
margar máltíðir liggja nú dæmdar ónýtar
i framandi landi, til þess, hve margir
hjer gætu fengið saðning sinn af þeirri
fæðu, sem þar fer nú fyrir lítið verð,
þá ætti almenningur að athuga þetta mál
vandlega og gjöra sitt til, að markaður
fyrir salta síld komist á hjer, með því
að neyta hennar og hætti að halda þá
góðu fæðu aðeins skepnufóður, því hún
á annað skilið.
Eg sé, að eitt af blöðum höfuðstaðar-
ins ber kvíðboga fyrir þvi, að magi okk-
ar íslendinga muni ekki þola síld.
Eg er þó á annari skoðun og álít
niaga okkar í góðu lagi til sildaráts, þar
sem við jbjóðum honum bæði hákarl,
óldinn fislc, einkum lúðu, saltaða og
signa grásleppu, hrá rúgbrauð 1—2 flösk-
ur af lútsterku kaffi á dag, súrt smjör og
harðæti, sem er hráæti. Getur nokkur
Þjóð sýnt önnur eins meltingafæri. Eg
held það varla, enda mundi sú raunin
a» að það yrði matvendni en ekki mag-
ittn, sem léti sig þegar á hólminn væri
komið.
Reykjavik 22. október 1920.
Sveinbjörn Egilson.
Fiskbirgðir landsins
15. ágúst 1920,
mlðað við verkaðan flsk.
Um miðjan ágúst voru skýrslur um
fiskbirgðir hjer á landi, talið frá nýjári,
safnað saman og eftir því sem næst varð
komíst voru þær þessar:
Faxaílói með Grindvík . . 105,000 Skp.
Stokkseyri................... 1,000 —
Eyrarbakki..................... 700 —
Þorlákshöfn.................... 800 —
Vestfirðir ................. 22,150 —
Breiðifjörður................ 3,000 —
Norðurland þar með Langa-
nes....................... 6,000 —
Austfirðir . . . . . . . 13,093 —
151,743 Skp.
Auk þessa munu um 4000
tonn hafa verið verkuð frá
fyrra ári .... _._______. . 16,000 —
Alls 167,743 Skp.
Peningavandræði, óvissar markaðs-
horfur með mörgu fleiru, ætti að benda
mönnum á hve nauðsjmlegt það sje, að
birgðir landsins af hverri vörutegund
sem er, sjeu eða geti með litlum fyrir-
vara verið kunnar. Ýmsu þarf að svara
i sambandi við peningastofnanir annara
landa og sölu afurða, sem er of mikils
varðandi til þess, að greinileg svör sjeu
ekki gefin, en þvi að eins er það unt,
að aflaskýrslur og aðrar skýrslur sjeu
fyrir hendi, sem byggt verði á.
Vonandi verður betur en verið hefur,
farið að athuga, hvers virðí aílaskýrslur
og afurða eru, þvi þótt allt hafi draslast
af til þessa, þá munu þó ílestir sjá það
nú, að við eigum að spila upp á eigin
spitur framvegis. Peningakreppa og fjár-