Ægir - 01.09.1920, Síða 12
100
ÆGIR
tjón kennir oft það, sem ekkert annað
getur kent,
Til þess að gjöra mönnum hægra fyrir
eru hjer settar almennar reglur, sem
hafðar eru, er flskstaflar eru mældir og
lætur mál það mjög nærri.
6— 7 teningsfet af blautum sölluðum
fiski er um 1. Skp.
7— 71/2 teningsfet af verkuðum fiski
er um 1. Skp.
Síldveiði fyrir Áustfjörðum.
Seyðisfirði 10. Sept. 1920.
1 morgun kom liingað e. s. Thorgrim
frá Aalesund, á heimleið frá Eyjalirði.
þar hefir það verið við síldveiðar i sumar,
og var með ca 200 tunnur af nýrri feitri og
fallegri sild á dekki, sem það seldi hjer.
Þegar það kom austur fyrir Langanes,
sáu skipverjar svo mikið af síld, að þeir
tóku snörpunót og kösfuðu henni, fengu
liana strax fulla, ca 1000 lunnur, en nótin
rifnaði, svo þeir mistu úr henni, nema
það sem þeir seldu hjer. Skipverjar
sögðust aldrei hafa sjeð eins mikla síld
nyrðra eins og nú austan við Langanes.
Þetta er í fyrsta sinn í sumar sem snörpu-
nót hefir verið kastað á Austurlandi,
en síðan um miðjan júlí s. 1. hefir síldin
altaf sjest útifyrir Austurlandi, frá Vestur-
horni til Langaness. Ressi síld var ákaf-
lega feit og nokkuð af átu i henni. Eftir
reynslu manna hjer, frá 1880 til 1896,
mætti álykta að síldin kæmi inn í Aust-
íirði seint í þessum mánuði og yrði þar
til jóla eða lengur. Það er ekki von að
síld hafi aflast lijer í sumar, því enginn
hefir reynt til þess. Heppilegra væri að
reyna að veiða hana á sem flestum stöð-
um, en að svo mikill fjöldi skipa safn-
ist á einum stað að eftirlit með verkum
á henni sje óframkvæmanlegt, svo i góðu
lagi sje. Ef það reyndist að síld aflaðist
vel í snörpunætur fyrir Austurlandi, eru
þar alstaðar góðar hafnir, og hentug síld-
arverkunar pláss. Árin 1880—1896 aflað-
ist á Austfjörðum mest síld á landi hjer
og brást ekki og af og til eftir það, en
einungis i kastnætnr inni á fjörðum. Þá
gátu menn látið síldina standa í nótunum
þangað til hún var laus við átuna, sem
svo oft vill spilla bestu síldinni. Enn þá
eiga menn hjer kastnætur (landnætur)
á öllum Austfjörðum, og vonast alt af
eftir að hún kunni að koma, og ef hún
kemur, fæst þar besta síldin.
Það er ekki aðgengilegt fyrir síldveiða-
menn að byrja hjer eystra á því að veiða
sild meðan engin Gúanó verksmiðja
er hjer, en hugsanlegt er að það dragist
ekki lengi, að hún kæmi, ef síld færi að
aflast hjer; svo bætur það ef lil vill úr,
í bráðina, að alstaðar eru hafnir góðar
á Austfjörðum, svo skamt gæti oft orðið,
sem flytja þyrfti síld til síldarsöltunar-
pláss. Svo þarf ekki að óttast að kast-
nótasíld skemmist, eða að úr henni gengi
neitt að mun.
Reglugjörð
um
framkvæmd iaga nr. 10, 8. september 1915
og laga nr. 7, 8. februar 1917.
Samkvæmt lögum nr. 10, 8. september
1915, um heimild fyrir ráðherra Islands
til að skipa fasta nefnd til að ákveða
verðlag á vörum, og lögum nr. 7, 8.
febrúar 1917, um viðauka við þau lög,
er eftirfarandi reglugerð sett til' lfram-
kvæmdar laganna.