Ægir - 01.09.1920, Page 16
104
ÆGin
Laus staöa
er stjórn Fiskifélagsins veitir.
Erindrekastaða Fiskifélagsins í Norðlendingafjórðungi er laus frá
1. janúar 1921.
Árslaun kr. 1000,00, ferðastyrkur kr. 300,00.
Umsóknir stílist til stjórnar Fiskifélagsins; veitist til 31. des. 1921.
Umsóknarfrestur til 20. des. þ. á.
Vegna þess hve veiðarfæri eru dýr,
réðist stjórn Fiskifélagsins í það, að
kaupa nokkra dúnka af þessu nýja börk-
unarefni, ef ske kynni að fiskimenn
vildu reyna það og athuga vel, hvort
það gerir veiðaíærin endingarbetri og
hvort það borgi fyrirhöfn og verð efnis-
ins að barka veiðafæri með þvi. Verðí
það ofan á, að mönnum líki það, þá
vonandi senda þeir álit sitt skrifstofu
Fiskifélagsins og einnig, sé það ekki við
hæfi, því bezt er að fá að vita hið rétta
um efni, sem hér er óþekt áður.
Mannalát.
Björn Jónsson prentsmiðjueigandi á
Akureyri andaðist á Landakotsspítala
hinn 5. október eftir holskurð.
Hann var erindreki Fiskifélags íslands
i Norðlendingafjórðungi frá 1. janúar
1918 og sýndi þar á öllum sviðum sér-
stakan dugnað og áhuga.
Lík hans var flutt norður.
Vonandi gefst Ægi síðar kostur á að
flytja æfiferil hins látna sæmdarmanns.
F. R. Wendel fyrrum verzlunarstjóri á
Þingeyri, andaðist hér í bænum 18. okt-
óber.
Hr. Matth. ólafsson lieíir sagt npp
stöðu sinni sein eriudreki Fiskifélagsins
í útlöndum frá 1. janúar 1931 að telja.
Kolaverkfallið.
Khöfn, 29. okt.
Símað er frá London, að fulltrúar
námumanna hafi tekið við tillögu stjórn-
arinnar. Fer atkvæðagreiðsla fram um
hana meðal námamanna 2. nóvember.
Verði faliist á tillöguna, hefst vinna aflur
þann 8.
Ný bök.
Að tilhlutun stjórnarráðsins liefir pró-
fessor Guðm. Hannesson samið bók um
samræðissjúkdóma, sem nýkomin er á
markaðinn.
Skýrsla yílr fiskaíla mótorbáta á Norð-
firði, sumarið 1919, verður birt í næsta
blaði.
Ritstjóri Svelnbjörn Egllson.
Prentsmiðjan Gutenberg.