Ægir - 01.07.1927, Side 11
ÆGIR
143
sinn með heimilisfólki sínu og er sú verk-
un að mun ódýrari en þegar kaupa þarf
fólk til hennar.
Dæmi þetta er sett hjer til að l)enda á
mismun og þeim til athugunar, sem tala
um og fyrir því, að allan afla landsins,
ætti að selja óverkaðan til Englands.
Færi allur fiskur óverkaður þangað
mundi mikið af honuin verkaður þar.
Haun er blóðgaður og búinn undir þurlc-
un af íslendingum og þá ekki annað eftir
en þvottur og þurkun. Að Englendingum
takist það svo líki, var reijnt síðastliðinn
vetnr.. Þeir mundu ekki kaupa fiskinn ef
þeir ætluðu ekki að græða á honum, en
þeirra gróði er íslendinga tap og miklu
meira tap en verðmunur, en eftir á að
hyggja, er ekki markaður takmarkaður?
í síðasta tbl. Ægis, bls. 119, stendur í
aðsendri grein, að „þurfiskframleiðsln
okknr íslendingn sje hverfandi, ef miðað
er við afurðamagn Norðmnnna og Breta,
Newfonndlands og m. fl. og munar ekki
ýkja miklu þált við hgrfum algerlega af
markaðinum“. (Sic.).
Þetta mun greinarhöfundi þykja vel
sagt, en þó er það alls eigi rjett og þarf
lítið fyrir að hafa til að ganga úr skugga
um það.
Saltfiskmarkaðurinn er mikill og verð-
ur vonandi svo áfram, en að því verður
að kepjia, að gjört sé alt til þess, að aðrir
H’amleiðendur þurkaðs saltfisks ekki fari
fram úr íslendingum i vöruvöndun. Eitt
uf því, sem dregur úr henni, er að ætla
sjer að selja fisk upp úr salti.
7. Júlí 1927.
Svhj. Egilson.
Saltfisksmarkaðurinn.
Það sem af er þessu ári hefir fiskverð-
ið verið mjög lágt og altaf farið lækkandi,
einkum hefir verið erfitt með sölu á stór-
fiski. Verðið á nýju framleiðslunni byrj-
aði með 108 fullverkað og pakkað
og 105 laust % verkað. Þetta verð er nú
komið niður í 100 kr. og eftirspurnin
lítil. Aftur á móti hefir labradorfiskur
verið mikið eftirsóttur og verðið á hon-
um farið hækkandi, byrjaði með 08 kr.
pr. skp. í aprílmánuði og var komið upp
í 77 kr. seinni hluta júnímánaðar, og
munu nú framleiðendur vera búnir að
selja mest af þeirri framleiðslu sinni.
Útflutningur hefir verið mikill það sem
af er árinu, enda voru óvenjugóðir þurk-
ar, einkum sunnanlands, svo að nýja
framleiðslan komst snemma á markaðinn,
svo að útflutningur af fiski verkuðum
og óverkuðum á áriuu hefir verið mikið
meiri en árið áður, eða 27,835 smál. 1927
á móti 20,281 1926 og þrátt fyrir það að
framleiðslan hefir á þessu ári orðið til 1.
júlí ca 44 þús. skpd. meiri en árið áður,
þá eru birgðirnar 1. júlí ca. 30 þús. skpd.
minni eða 159 þús. á móti 189 þús. skpd.
árið áður. Þar sem allir togarar eru nú
hættir saltfiskveiðum í bili og flestir
stærri bátar farnir á síldveiðar, þarf ekki
að óttast, að mjög mikið bætist við af
saltfiski það sem eftir er ársins, að minsta
kosti varla meira en síðastliðið ár, og
mætti því búast við að eftirspurn eftir
fiski muni aukast þegar líður á haustið,
því birgðirnar í neyslulöndunum eru
ekki meiri en vanalegt er um þetla leyti
árs.
Eftir því sem næst verður komist sam-
kvæmt skýrslum frá Noregi, eiga saltfisk-
birgðirnar þar að vera ca. 70 þús. skpd.
minni en árið áður, og útflutningur það-
an, það sem af er þessu ári, hefir verið