Ægir - 01.07.1927, Blaðsíða 14
146
ÆGIR
Mesta deyl'ð var yfir markaðnum allan
mánuðinn og mun mega fullyrða, að tals-
vert af því, sem hér er talið selt, hafi
legið í geymsluhúsum hjá smásölum, eða
m. ö. o. að neyslan hafi ekki verið eins
mikil og umsetning heildsalanna.
fíilbao: Birgðirnar voru taldar þar i
apríllok kringum 1100 smál. eins og segir
í síðustu skýrslu minni. Innflutningur í
maimánuði hefir samkv. skýrslum ræðis-
mannsins numið kringum 3150 smál. alls.
Þar af hefir komið beint frá íslandi eða
yfir Hamborg eitthvað kringum 2200 smál.
Ennfremur kom nokkuð frá Færeyjum og
frá Englandi, og frá Noregi kom af nýj-
um l'iski eitthvað milli 200 og 300 smál.
Birgðirnar í mánaðarlokin eru taldar
hafa verið ca 1750 smál. Samkv. þessu
hefir neyslan eða salan í maímánuði hafa
átt að nema kringum 2500 smál. og er það
talsvert meira en ég hafði talið líklegt að
rétt geti verið, eftir þeim fréttum, sem
hingað hafa komið um söluna í Bilbao.
Verðið hélst nokkurnveginn óbreytt
fram eftir mánuðinum, i kringum 60—65
pes. pr. 50 kg. fyrir nr. 1 Faxaflóafisk
(28—32 sporðar), alt eftir því hvort mik-
ið var keypt í einu. Seinni part mánaðar-
ins fór nýi fiskurinn að koma á markað-
inn, þó lílið væri, nokkuð af íslenskum
og nokkuð af færeyskum og norskum. Var
nýi íslenski fiskurinn seldur á ca 64—68
pes., norskur kringum 65, en færeyskur á
ca 70—74 pes. Jafnframt varð vitanlega
erfiðari salan á gamla fiskinum og var
hann um mánaðarlokin seldur á ca 60
pes.
Yfirleitt er það um markaðinn að segja
á báðum þessum stöðum, hæði Barcelona
og' Bilbao, að afardauft hefir verið yfir
honum og innflytjendurnir liafa verið
mjög tregir á að ákveða sig til að kaupa
af nýju l'ramleiðslunni. Nokkuð stafaði
það, eins og vant er, af því að menn ótt-
uðust, að fyrningar mundu verða miklar
af fyrra árs fiski og að hann mundi flækj-
ast fyrir og draga niður verðið á nýja
fiskinum. Þessi ótti hefir heldur ekki
reynst ástæðulaus, sérstaklega vegna þess,
hvað nýi fiskurinn hefir orðið snemma
húinn í ár, svo að fyrir það hefir dagað
uppi meira af gamla fiskinum hér á
markaðnum, en annars hefði mátt húast
við. Af þessum ca 1300 smál., sem hér
voru í Barcelona í maílok, er á að giska
ca 9—4000 smál. gamall fiskur og af
þeiin ca 1750 smál,. sem talið er að ver-
ið hafi á sama tíma í Bilbao, mun mest-
alt hafa verið gamall fiskur, eða a. m. k.
eitthvað kringum 13—1400 smál. Nokkuð
af þessuin gamla fiski i Bilbao mun hafa
verið skemdur, þ. e. jarðsleginn og því
seldur fyrir afarlágt verð og bætir það
ekki um. Hér i Barcelona hafa það aftur
á móti verið mikið til góðar tegundir,
sem legið hafa fyrir af gömlnm fiski og
fyllilega útgengileg vera, ef markaðurinn
hefði ekki að öðru leyti verið svona dauf-
ur, eins og raun hefir á orðið.
Valencia: Áætlað er að birgðir hafi ver-
ið þar í maílok kringum 1500 smál. og
líkl. þó vel það, aðallega af fyrra árs egta
Labrador og frakkneskum fiski. Eru þetta
afarmiklar birgðir af fyrningum, þegar
þess er gætt, að ársinnflutningurinn þang-
að er ekki meiri að jafnaði en uppundir
7000 sinál. Verðið var kringum 50 pes.
pr. 50 kg.
Genova: Innflutningurinn þangað var
mjög lítill allan maimánuð og kom þang-
að ekkert af íslenskum fiski og aðeins
smásendingar frá öðrum löndum, Eng-
landi, Frakklandi o. fl. En auk þess var
um mánaðamótin von á farmi af norsk-
um fiski, kringum 150 smál. af þurkuð-
um og pressuðum fiski og votfiski og er
það nýlunda þar á markaðnum.
Salan var afardauf allan mánuðinn, en