Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1927, Blaðsíða 26

Ægir - 01.07.1927, Blaðsíða 26
158 ÆGI R því M. Þ. byrjaði útgáfu og ritstjórn „Ægis“ (fór fyrst i pressu í Gutenberg 10. júlí 1905). í riti þessu verða greinar á íslensku, ensku og spönsku, en aðallesmálið er danska. Hvernig ritstjórn verður hagað sést best á eftirfarandi kafla, sem tekinn er úr hinu fyrsta tölublaði ritsins, er hingað barst: „Rit það sem hér kemur fyrir almenn- ingssjónir er skrifað í þeim tilgangi með sem fæstum orðum og stuttu millibili að birta yfirlit yfir fiskiveiðar í norðurhöf- um, skýra frá framförum er verða á því sviði og á verkun og hagnýting afurð- anna, eins og lika verslunin m. fl. verð- ur gjörð að umtalsefni eftir því sem kost- ur er á. Venjulega mun í hverju tölublaði verða birt stutt grein eða athugasemd snert- andi íslenskar fiskiveiðar. Þetta mun þó ekki geta orðið nema mjög Iítið. Rúm- ið leyfir ekki nema fáorðaðar athuga- semdir, er þó ættu að geta gefið tilefni til ihugunar. Sem einn lið í þeirri viðleitni að styðja islensk fiskiveiðamál mun blaðið á sama hátt birta smágreinir á spönsku um versl- un á fiski til hinna spansktalandi landa og þannig greiða fyrir þeirri hlið málsins er snýr út á við. Fiskiveiðarnar eru orðnar svo stórfeld- ar, hagnýting afurðanna svo margbrotin og verslun með fisk svo mikilvæg og víðtæk, að hér er ekki um staðbundin smáat- riði að ræða, heldur alþjóðamál sem fram- leiðandi, seljandi og kaupandi eiga allir jafnan hlut, að þeir þurfa að finna hver annan og skilja hver annan“. Blaðið er prýðilega úr garði gert og má búast við, að það færi lesendum ýmsan fróðleik. Hiö nýja Grænland. Hinn 14. júní s. 1. var félag stofnað í Kaupmannahöfn og nefnt „Hið nýja Grænland". 'rilgangur félagsins er að afnema ein- okunarverslunina á Grænlandi, að gera að- gang að landinu frjálsan dönskum og is- lenskum ríkisborgurum, svo og, að nokkr- um mönnum sé frjáls búseta á Suður- Grænlandi, að Danir og íslendingar fái rétt til að stunda veiðar með ströndum fram, og að auka atvinnu Græn- lendinga. Stjórn félagsins skipa: Formaður er umsjónarmaður O. Bendixen, varform. sjóliðsforingi Gotfred Hansen, fram- kvæmdastjóri Anton Petersen, kaupmað- ur Matthías Þórðarson, prófessor Knud Berlin, rithöfundur Harry Söiberg, rit- höfundur Jöí'gen Frantz Jakobsen frá Færeyjum og hæstaréttarmálafærslumað- ur Stein. Aðra má hér nefna, sem mjög hafa hvatt til þessarar félagsstofnunar svo sem: yfirréttarmálafærslumann Peter Poulsen, fyrverandi lækni á Grænlandi St. Barchania, kaptein í flotanum C. G. Scack, prófessor Valtý Guðmundsson, rit- höfund Gunnar Gunnarsson, jarðfræðing dr. phil. Nordmand, fyrverandi lækni á Grænlandi Th. N. Krabbe og fleiri inerka menn. Félagsskapur þessi býst við megnri mótstöðu af hendi þeirra, sem stýra ein- okuninni og veit, að þeir muni leita allra bragða til að vinna móti öllu því, er fé- lagið hefur á dagskrá. Félagið ætlar að varast alla pólitík, og láta hvorki danska flokkapólitík eða ís- lensk-danska pólitík, komast inn í málið, því tilgangur þess er sá einn, að öðlast rétt til notkunar þeirra gæða, sem eru í Grænlandi og við, og gera íbúana hlut-

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.