Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1932, Blaðsíða 6

Ægir - 01.06.1932, Blaðsíða 6
140 ÆGIR raarksverð sín á milli. Jafnvel hve lágt sem það yrði, mundum við græða á því, bæði einstaklingarnir og landið. Þegar innílutningurinn til Portúgal er 12000 smál, raunar shillings verðhækkun eða lækkun landið 221500 kr., svo ekki ætti fé það, sem um er að ræða, að draga úr raönnum að reyna að koma á ein- hverri samvinnu og samheldni, enda sýn- ist hún ekki erfið, þegar eilt íslenzkt fé- lag ræður yfir helmingnum af innflutn- ingnum. Um Færeyinga þarf ekki að tala hér, því jafnvel þó þeir kynnu að njóta að einhverju leyti hærra verðs í skjóli okkar, mundi sá fiskur, sem seldur yrði til Portúgal draga úr framboði þeirra í Bilbao og Barcelona og kæmi okkur ís- lendingum ekki illa. 1 þessu sambandi vil ég geta þess, að ég hef skrifað utanríkismálaráðuneyti voru í Reykjavík um það hvort ekki mundi vera hægt að fá vikulegar skýrsl- ur um fiskinnflutning og verð í Oporto, eins og frá öðrum innflutningshöfnum. Getur okkur komið það vel, að fá sím- leiðis skýrslur frá stað, sem nú er orð- inn fjórði stærsti innflutningsbær fyrir íslenzkan saltfisk. Tollurinn er nú 38 esc. pr. 60 kg. af fiski. Er gefinn afsláttur af bonum ef fiskurinn er fluttur með skipi frá Portu- gal, og nemur hann 30°/o af óverkuðum saltfiski, en 8°/o af verkuðum. Pening- arnir eru verðfestir í hlutfalli við enskt pund eins og íslenzka krónan. Er gengið 109 — 110 esc. fjmir pundið og jafngilda 5 esc. því einni krónu. Stjórnarfarið er einræði í höndumhers- höfðingja eins. Eru margir óánægðir með stjórnarfarið og hafa smá óeyrðir verið hingað og þangað, en verið bældar nið- ur með hervaldi. Er verið að undirbúa að kalla saman þing, en svo sem ann- arsstaðar reynist erfitt að hverfa aftur að lýðræðí, frá einveldi, án þess að róstu- samt verði í svip. Búast margir við ó- eyrðum, þegar slakað verður til, en vona að bylting sú, sem mörgum virðist ó- hjákvæmileg, verði jafn friðsamleg og farsæl sem hún hefur virst í Spáni. Frá Portúgal fór ég til Seviila. Liggur hún um 100 km. frá sjó, en stendur á bökkum Guadalquivir, sem er geng fyrir 8—10.000 smál. skip og er hún þriðja stærsta innflulningsborg fyrir saltfisk á Spáni. Gengur hún næst Barcelona, en Bilbao er stærst. Með þvi að markaðurinn fyrir Sevilla, Malaga, Alicante og Valencia er mjög svipaður, og það sameiginlegt með þess- um bæjum, að þar keppir íslenzkur fiskur við fisk frá Newfoundland, þykir réttara að tala um þessa bæi, sem eina heild. Til samans kaupa þessir fjórir hæir 20 þús. smálestir. Selja íslendingar rétta þriðjung af því magni, en hitt kemur frá Newfoundland. því franskur »lavé«, sem áður hafði allstóran markað þarna, er nú að hverfa, en íslenzkur pressufiskur, að koma í staðinn. Sama sem ekkert er selt af norskum fiski, frekar en annars- staðar á Suðurspáni. - Fiskurinn frá Newfoundland skiptist í svokallaðan »shore« fisk og í labrador fisk. Er egta labrinn seldur heldur ódýr- ari en sá íslenzki, en »shore«-fiskurinn, sem Spánverjar kalla bacalao inglés, eða enskan íisk, er seldur tvöfallt hærra verði eða meira, en sá íslenzki. t*egar verðið á íslenzkum fiski er 80 pesetar pakkinn, er quintal af shore-fisk selt á 170 — 190 peseta. Hér eins og í Oporto eru menn, sem kaupa shore-fisk hvað sem hann kostar. Er fiskur þessi afar þykkur, saltaður í pækli, en ekki mikið, virðist lítið press-

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.