Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1932, Blaðsíða 8

Ægir - 01.06.1932, Blaðsíða 8
142 ÆGIR Vógu 1300 pakkar, sem sendir voru til Malaga til samans 01.844 kg. Sagði ég móttakendunum að tiskurinn frá Græn- landi muni hafa verið frá fyrra ári, en að fiskur veiddur í vor mundi áreiðan- lega hafa lézt um meira en 5°/° og mundi fiskurinn því hafa verið sendur að heim- an með töluverða yfirvigt til að gera fyrir rýrnun. Játuðu þeir því en þótti auðvitað ekki gott, að eiga að greiða hinn háa toll af yflr 3000 kg. sem þeir ekki fengu, en tollútreikninginn eru pakk- arnir taldir og tolluriun miðaður við að 50 kg. séu í hverjum pakka. Hefur mót- takandinn því orðið að greiða 2200 pe- seta í toll af fisld, sem ekki kom til hans. Þessi rýrnun spillir mjög mikið fyrir sölu á íslenzkum fiski og lendir að lokum á okkur, svo nauðsynlegt er að senda ekki fisk sem ekki er fullstaðinn, til að tryggja að engin óeðlileg rýrnun komi á leiðinni. Töldu menn að hægt mundi að selja töluvert meira af íslenzkum fiski, á þessu sviði, en riú er gert og að okkur mundi mögulegt að útrýma egta labranum mik- ið til. Að kaupmenn vilja heldur egta labrann kemur aðallega til af þvi að hann er allur seldur í umboðssölu, og fá menn þvi gjaldfrest og fleiri hlunn- indi í sambandi við sölu hans, og einn- ig geta kaupmenn varist við umboðssöl- una stærstu ókostum islenzka fiskjarins, rýrnuninni á léttverkaða fiskinum og rauða jarðslaganum illræmda. Var all- staðar kvartað undan honum þar sem ég kom, og vildu kenna matinu um að það væri ekki tryggt og að ríkið greiddi skaðabætur fyrir skaða þeirra á islenzk- um fiski, sem eyðilegðist af roða. En þó ríkið greiddi ekki skaðabætur, er þessi rauði jarðslagi landinu til stórskaða á hverju ári, því það er skiljanlegt, að menn sem fá ef til vill fjórða hluta fiskjarins eyðilagt, reyni að varast slíka vöru í framtíðinni. En það liafði komið íyrir einn innflyljandann í Alicanti. Mun ég bráðlega senda ráðuneytinu skýrslu um hvers ég hef orðið visari um vágest þennan. Helgi P. Briem. t Jón Brynjólfsson skipstjóri. Hinn 18. maí þ. á., lézt á sjúkrahúsi ísafjarðar, Jón Brynjólfsson fyrrum skip- stjóri, einn af elztu þilskipaformönnum hér vestra. Hann var 67 ára að aldri, fæddur 17. mai 1865 að Bæ í Súganda- firði, flultist hann ungur til ísafjarðarog átti þar heima síðan, að tveim síðustu árunum undanskildum. Jón gerðist á ungum aldri skipstjóri á fiskiskipum frá Isafirði, er hann álti þá i- félagi við Albert bróður sinn. Fyrir aldamótin réðist hann í ásamt nokkrum mönnum að kaupa þilskipið »Bacilia«, er þá var eitt af stærstu fiskiskipum, er gengu frá Vestfjörðum. Var hann síðan fyrir því skipi þar til það rak í land á Isafirði í ofsaveðri veturinn 1905, og ö- nýttist algerlega. Skipið var óvátryggt, eins og gerðist um þær mundir. Biðu þeir Jón og félagar hans við það mikið tjón. Að þvi loknu gerðist Jón heitinn skipstjóri á póstbát, er gekk á Eyjafirði. Síðan fékkst hann við útgerð smáfæra- skipa, og jafnframt sildveiði með vörp- um í félagi við Brynjólf son sinn. Höfðu þeir feðgar fluzt að Uppsalaeyri við Seyð- isfjörð fyrir tveim árum og áttu þar heima síðan. Var Jón heitinn þannig reyndur í sjómennsku og útgerðarstarf-

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.