Ægir - 01.06.1932, Page 11
ÆGIR
145
hreinsa það vel með stálburstum, þvo
það og þurka vandlega og hinn fyrsti
áburður, sem nýtt járn fær, er hrá eða
soðin linolía.
Meðan skip er í smíðum, eru þau
þrimáluð með ryðvarnarefni (anticor-
rosiv composition); er blýmenja, járn-
menja, sinkhvíta og ýmsar tegundir af
rvðvarnarefnum hið almennasta.
Eftir að nýtt skip hefur verið á ferð-
um í 6 mánuði, ætti að láta það i þur-
kví, skafa það og mála á ný og vanda
til þess, sem auðið er.
Ekki má með vissu segja, hve lengi
málning helst á skipinu eftir það. Er
það að miklu leyti komið undir far-
vatni þvi, sem skipið fer um og einnig
hvaða áburður (málning) notaður var,
en mest er komið undir þvi, að hann sé
horinn á þurt og hreint stálið eða járnið.
Yms dæmi sýna það, að samskonar
efni helzt misjafnlega á stálplötum.
Sumstaðar myndast af því bólur, sem
bresta og á þá sjórinn greiðan aðgang
ei' þær falla af og ryðið þróast vel.
Annarsstaðar loðir það vel við stálið,
sPryngur hvorki né fellur af og lýtur út
sem nýmálað væri, eftir langan tima.
Orsök til þessa mismunar er oftast sú, að
siðara skipið hefur verið þurt og hreint er
naálning var borin á og það gert í þurru
veðri, en ekki vandað eins til hins.
Yður en skipsbotn er málaður, verður
að skafa alla gamla málningu hurt^
berja og skafa ryð 03 óhreinindi af
larninu og þvo það siðan með fersku
vatni og láta síðan botninn þarna vel.
Þegar allt er fágað og þurt, þá er máln-
,ngin borin á og það margborgar sig að
vanda það verk vel.
f*egar skip hefur lent á skeri eða
snert grunn, getur varla hjá því farið,
að málning hafi nuggast af, það verður
að eudurbæta hið fyrsla.
Hið yzta lag af málningu, sem borin
er á skipsbotn, er ekki ætluð til þess að
verjast ryði (anticorrosive), heldur lil
þess að verja skipsbotninn frá skel og
öðrum gróðri (slími, þara, þangi); er
sá áburður margskonar, en einu nafni
nefndur vaníifouling compositionv. Eru
hinar ýmsu tegundir áburðarins aug-
lýstar mjög í blöðum og er hver teg-
undin þar, talin hin bezta.
Allt það ryð, sem hér hefur veriðgetið
um, er sýnilegt á skipsskrokknum að ut-
an og á þilfari, en eftir er þó aðal-
gróðrarstöðin, i farmrúmum undir garn-
eringu, undir kötlum, á skiljum, t kola-
geymslum og inn í vatnshylkjum, i
krókum og kimum. Þar vinnur ryðið
jafnt og þétt að, að þynna plöturnar og
komast nær sjónum að utan, en utan á
skipsbotni og hliðum keppist það við að
komast inn í skipið. — Þegar að lokum
árekstur verður og ryðið að innan nær
þvi, er vinnur utan að, er eyðilegging
alger.
Þegar skip eru flokkuð (klössuð) er
allt ryð fjarlægt að utan og innan, og al-
staðar þar sem næst til. Eftir viðhaldi
fer það að miklu leyti hve dýr flokk-
unin verður.
Kolageymslu (box) má ekki forsóma
að athuga iðulega. Gas það sem mynd-
ast af kolum hefur ill áhrif á stál, sem
ekki er vel varið með ryðvarnarefni.
Málning stendur þar ekkert við, en þó
hefur sæmilega gefist að mála kola-
geymslu með menju og bera síðan
þykka koltjöru á. Hið svonefnda »bit-
umastic enamek hefur á siðari tímum
verið brúkað og hefur reynzt ágætlega,
en það er dýrt.
12. oktbr. 1928.
Subj. Egilson.