Ægir - 01.09.1936, Blaðsíða 14
200
Æ G I R
rílrið lán lil 10 ára, með 33/5°/o vöxtum
o|i hankar lána lil smíði bátanna, það
sem á vantar, með 6°/o vöxtum, óákveð-
inn tima.
Geti bátaeigendur ekki slaðið í skilum
og slíkt skeður oi’t, eru bátarnir teknir
af þeim og seldir öðrum. Að sænska
rikið veil slík lán er ekki nýtt, það hef-
ur það gert rúm 30 ár. Það má ekki
skilja þetta svo, að hinir sænsku fiski-
menn stundi ekkert annað en lönguveið-
ar og vinna þeirra sé aðeins 3—4 máán-
uði ársins; á vetrum stunda þeir síld-
veiðar og annað er lil fellur, heimafyrir.
Pessar Shetlands- og Hebrides-ferðir
má kalla langræði; mun vegalengd vera
um 600—700 sjómílur hvora leið.
Það var á árunum lí)08 og næstu ár
á eftir, að Norðmenn gerðu út línuveiða-
háta frá Hafnarfirði. Eg var þá í Yiðey
og heimsótti föður minn oft suður í
Hafnarfjörð. Eilt sinn átti ég þá tal við
norskan skipstjóra, sem var að koma úr
veiðiför með fullfermi af löngu og spurði
liann, hvar hann hefði fengið þennan
aíla. Það vildi liann ekki segja mér, en
gat þess, að fleiri en hann stunduðu hér
lönguveiðar. Um sérstök löngumið eða
aðferðir til að fá aðallega þann fisk, liefi
ég ekkerl heyrt, en velkomið er rúm i
Ægi og tekið með þökkum, ef einhver
vildi gefa upplýsingar um það.
Sueinbjörn Egilson.
Leiðrétting.
í 25 ára minningarriti Fiskifélagsins,
bls. 55, 3. 1. a. n., er skýrt frá því, að
verð Ægis sé nú 3 kr. árg.
Þetta mun byggt á einhverjum mis-
skilningi höf., því verð Ægis hefur verið
5 kr. árg. síðan 1935.
Vitar og sjómerld.
Auglýsing fyrir s.jómenn 1936.
14. Sjómerki nr. 94, steinvarða á Al-
viðruhömrum, er máluð hvit.
15. Sauðanesvitinn (nr. 53). Yita-
lnisið er hvítur, ferstrendur turn með
viðbyggingu, svart ljósker, 10 m.
16. Leiðarmerki Sauðanes (nr. 62).
Toppmerkið er hvít, ferstrend plata með
lóðréttri, rauðri rönd ffl
17. Legumerki á Sandi (nr. 16, c og
d). I stað merkjanna c og d eru komn-
ar 2 steinvörður með toppmerkjum og
hera þær saman í 227 ° stefnu. Bak-
varðan c stendur í hrauninu fyrir norð-
an húsin í Krossvik og er hvít með lá-
réttri, rauðri rönd, 2,5 m há, með topp-
merki, tígulmyndaðri, ^ rauðri plötu.
Framvarðan d stendur á sjávarbakkan-
um, ca. 30 m frá sjó og er livít með
lóðréttri, rauðri rönd, 2,5 m há með
toppmerki, kringlóttri, Q rauðri plötu.
Milli varðanna eru 360 m. Akkerislegan
er hin sama og verið hefir.
18. Flatey á Breiðafirði. 2 nýjar vörð-
ur hafa verið reistar og sýna þær í sam-
bandi við innsiglingavörðurnar í Hafn-
arey (sjómerki 22) akkerisleguna fyrir
vestan Flatey. Bakvarðan er á 65° 22'
23" nbr., 22° 55' 35" v.l., og er hún
grá, 2,5 m á hæð, með loppmerki, rauðri,
tígulmyndaðri plötu Framvarðan
stendur 107 m neðar og er hún grá, 2,5
m á hæð, með toppmerki, rauðri, kring-
lótfri plötu Vörðurnar standa á tang-
anum vestantil á eynni fyrir vestan
hyggð. Stefna varðanna er 158° 46'. •
lleykjavik, 1. ágúst 1936.
Vitamálastjórinn Th. Krabbe.