Ægir

Årgang

Ægir - 01.05.1939, Side 9

Ægir - 01.05.1939, Side 9
Æ G I R 109 ii Félagsmaður, sem fer úr félaginu, eða bú þess, sem deyr, ber ábyrgð samkvæmt þessari grein á skuldbindingum félagsins, er á því livíldu, er liann gekk úr, þó eigi lengur en tvö ár frá næstu áramótum eftir úrgöngu, nema risið hafi mál út af skuld, er stofnuð var á meðan hann var í því, er bíði úrskurðar dóm- stólanna. 5. gr. í hlutarútgerðarfélagi skulu skipverj- ar og aðrir fastir starfsmenn ráðnir gegn á- kveðnum hluta af afla, og skal hlutúr vera full greiðsla fyrir vinnu þeirra. Fyrirkomulag hluta- skiptanna skal ákveðið í samþykktum félagsins. Veiðarfæra- og beitukostnaður, kol, olia og salt, greiðist af óskiptum afla. 6. gr. í varasjóð hlutarútgerðarfélags greið- ist árlega 1% af óskiptum ársafla. í varasjóð skal greiða árlegan tekjuafgang félagsins, og skulu ársvextir Iagðir við liöfuðstólinn. Tekju- lialli, sem verða kann hjá hlutarútgerðarfélagi, greiðist úr varasjóði. Fé varasjóðs má nota sem veltufé i þarfir félagsins. 7. gr. í samþykktum hlutarútgerðarfélags skal vera ákvæði um tryggingarsjóð, er hafi það markmið að tryggja félagsmönnum, sem vinna hjá félaginu, lágmarkstekjur, eftir nán- ari ákvæðum i reglugerð, sem félagið setur. Skal sú reglugerð samþykkt af bæjar- eða sveit- arstjórn, þar sem félagið á heima, og staðfest af rikisstjórninni. Tekjur sjóðsins skulu vera þær, sem liér segir: f. Árlegt gjald, 1% af óskiptum ársafla fé- lagsins, miðað við verð afla upp úr skipi. -• Árlegt tillag frá hlutaðeigandi bæjar- eða hreppsfélagi, er nemi jafnhárri uppliæð og gjald samkvæmt tölulið 1 verður árlega. Heimilt er að ákveða, að tillög í sjóðinn skuli vera hærri en að framan greinir, ef þurfa þykir, enda sé það samþykkt af hlutaútgerð- arfélaginu og viðkomandi bæjar- eða sveitar- stjórn. rryggingarsjóður skal ávaxtaður í banka e®a annari tryggri peningastofnun, og skulu vextir af honum lagðir við höfuðstólinn um hver áramót. Hlutarútgerðarfélag eða stjórn þess getur ekki ráðstafað innstæðu tryggingarsjóðs, og ó- heimilt er að skerða sjóðinn til lúkningar skuldum félagsins, en hætti félagið störfum, skal sjóðurinn ávaxtaður áfram á nafni hlut- aðeigandi bæjar- eða sveitarfélags, sem getur ootað innstæðu hans til að greiða tillög i trygg- ingarsjóði annara hlutarútgerðarfélaga, sem þar starfa. 8. gr. Fjárreiðum hvers einstaks skips hlutar- útgerðarfélags skal haldið aðgreindum í bók- um félagsins. 9. gr. Félagsfundur liefir æðsta vald í mál- efnum hlutarútgerðarfélags. Einn aðalfund skal halda árlega, og aukafundi þegar félagsstjórn telur þess þörf. Ennfremur er félagsstjórn skylt að boða til aukafundar, ef M félagsmanna krefst þess skriflega og greinir fundarefni. . Dagskrá skal jafnan greina i fundarboði. Atkvæðisrétt á félagsfundum hafa allir með- limir félagsins. Félagsfundir eru lögmætir, ef helmingur félagsmanna er mættur. Sé fundur ekki lögmætur sökum fámennis, skal boða til nýs fundar, og er hann þá lögmætur án til- lits til þess, hve rnargir eru mættir. Á fund- um ræður meiri hluti atkvæða úrslitum mála, nema öðruvísi sé ákveðið i samþykktum fé- laganna. Til funda sé boðað með minnst viku fyrirvara. 10. gr. Á aðalfundi skal kjósa stjórn og endurskoðendur og varamenn þeirra, sem allir séu félagsmenn. í samþykktum félags skal á- kveða tölu stjórnarnefndarmanna og kjörtíma þeirra. Stjórnin kýs sér formann og varafor- mann. Stjórnarfundur er lögmætur, ef meira en helmingur stjórnenda er á fundi, og ræður afl atkvæða úrslitum mála, en séu atkvæði jöfn, ræður atkvæði formanns. Stjórnin fer með málefni félagsins milli funda, samkvæmt lög- um þessum og samþylcktum félagsins, og bera sjórnendur ábyrgð fyrir aðalfundi, einn fyrir alla og allir fyrir einn, nema sá, er látið hefir bóka ágreiningsatkvæði í gerðabók félagsins. Endurskoðendur skulu sannprófa, að reikn- ingum félagsins beri saman við bækur þess, enda liafi þeir aðgang að öllum bókum og skjölum á hvaða tima sem er, og er stjórninni skylt að veita þeim þær upplýsingar, sem þeim eru nauðsynlegar við framkvæmd starfsins. Ennfremur er það skylda endurskoðenda að liafa eftirlit með starfrækslu félagsins yfirleitt. Nú verða þeir varir við misfellur, er þeir álita, að félaginu stafi hætta af, og skulu þeir þá lilutast til um, að bót verði á ráðin svo fljótt sem þörf krefur, en takist það eigi, skulu þeir kveðja til fundar í félaginu og bera málið þar upp til úrlausnar. Endurskoðendur bera ábyrgð fyrir aðalfundi. Á aðalfundi skal árlega leggja fram endur- skoðaða reikninga fyrir næstliðið reikningsár

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.