Ægir - 01.05.1939, Qupperneq 10
110
Æ G 1 R
og taka ákvörðun um þá. Nú fellir fundurinn
tillögu um að samþykkja reikningana, og get-
ur liann þá ákveðið, að yfirskoðun skuli fara
fram, eftir þeim reglum, sem fundurinn setur.
Að þeirri yfirskoðun lok’inni skal að nýju boða
til fundar, sem tekur fullnaðarákvörðun um
reikningana.
11. gr. í samþykktum hlutarútgerðarfélags
skulu ákveðin skilyrði fyrir úrgöngu úr félag-
inu og tilgreindar ástæður, er heimili brott-
rekstur félagsmanns.
12. gr. Hlutarútgerðarfélag, sem er löglega
stofnað, skal skrásett samkvæmt lögum þess-
um, og getur það þá fyrst öðlazt réttindi á
liendur mönnum með samningi og aðrir á hend-
ur því. Skrásetningu annast lögreglustjóri, þar
sem félagið liefir heimilisfang. Atvinnumála-
ráðherra setur ákvæði um, hvernig skrásetn-
ingu skuli haga, og lætur gera eyðublöð undir
tilkynningar til skrásetningar. Félag skal til-
kynnt til skrásetningar innan mánaðar frá
stofnun þess. í tilkynningu skal greina þessi
atriði:
1. Heiti félags, heimili og varnarþing.
2. Dagsetning fétagssamþykkta.
3. Full nöfn, stöðu og heimili stjórnenda og
framkvæmdarstjóra.
4. Hver heimild hafi til að skuldbinda fé-
lagið með samningum og livernig undir-
skrift sé liagað.
5. Hvernig boða skuli félagsmönnum fundi
og hirta þeim fundarályktanir eða önnur
málefni, er þá varða.
Tilkynningu skulu fylgja samþykktir félags-
ins i 2 eintökum og lögboðin gjöld. Sé um úti-
bú að ræða, slcal það einnig tilkynnt. Ef sam-
þykklum félags er breytt, eða breyting verður
að öðru leyti á því, sem tilkynnt hefir verið
til skrásetningar, skal tilkynna lögreglustjóra
breytinguna innan mánaðar.
Nú vantar í tilkynningu greinargerð um ein-
hver þau atriði, sem skylt er að geta, eða henni
er áfátt að öðru leyti, og skal lögreglusljóri
birta það tilkynnanda svo fljótt sem kostur er
á, en fresta skrásetningu unz úr er bætt. Rétt
er tilkynnanda að bera málið undir atvinnu-
málaráðlierra eða leita úrlausnar dómstóla.
Tilkynningu til skrásetningar skai lögreglu-
stjóri tafarlaust birta í Lögbirtingablaðinu á
kostnað tilkynnanda.
13. gr. Hlutarútgerðarfélagi skal slita, ef
ályktun um það er samþykkt á 2 lögmætum
félagsfundum í röð og henni eru fylgjandi eigi
færri en % atkvæðisbærra fundarmanna. Skila-
nefnd, kosin af félagsfundi, fer með mál fé-
lagsins meðan á félagsslitum stendur. Skila-
nefnd kemur í stað stjórnar félagsins og liefir
samskonar vald, skyldur og ábyrgð. Meðan
skilanefnd stjórnar félagi gilda reglur laga
þessara um félagsfundi, reikningsskil og end-
urskoðun. Félagsslit skal tilkynna lögreglu-
stjóra, og skal liann þá afmá skrásetningu fé-
iagsins.
Sömu aðiljar, sem ráða félagsslitum, geta
stöðvað þau á livaða stigi sem er, fengið fé-
lagsbúið aftur afhent sér í hendur og haldið
áfram starfsemi félagsins að nýju, en þar að
lútandi ályktun skal vera samþykkt með sama
liætti og hin upphaflega ályktun um félags-
slitin.
14. gr. Gjöld fyrir störf þau, sem lögreglu-
stjórum eru falin í lögum þessum, renna í
ríkissjóð og eru þau, sem hér segir:
a. Fyrir skrásetningu félags, sem eigi hefir
verið skrásett áður, 30 krónur.
b. Fyrir skrásetningu útibús 20 krónur.
c. Fyrir skrásetningu breytingar eða viðauka
við eldri skrásetningu 15 krónur.
d. Fyrir að afmá skrásetningu greiðist helm-
ingur af ofanrituðum gjöldum.
15. gr. Hlutarútgerðarfélög, sem stofnuð
verða samkvæmt lögum þessum, skulu undan-
þegin greiðslu tekjuskatts til ríkisins af því
fé, sem þau leggja í tryggingar- og varasjóði.
Heimilt er bæjar- og sveitarstjórnum að veita
hlutarútgerðarfélögum undanþágu frá greiðslu
útsvars lil bæjar- og sveitarsjóða.
10. gr. Hlutarútgerðarfélög, sem stofnuð
verða samkvæmt lögum þessum, skulu vera
undir eftirliti ríkisstjórnarinnar, sem getur
falið skipaútgerð ríkisins eða fiskveiðasjóði
framkvæmd þess.
17. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.
Norskir línuveiðarar
hafa undanfarið veitt mjög vel við ísland,
að því er norskar fregnir herma. Hafa þeir
aðallega veitt í Breiðafirði og Reykjafjarðar-
ál. Er slíkt nokkur kaldhæðni, hvað íslend-
inga snertir, að erlend skip skulu telja sér
feng i þvi að sækja hingað til veiða, i sama
mund og íslenzka vélbáta- og línuveiðaflot-
anum er lagt upp.
t