Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1939, Síða 17

Ægir - 01.05.1939, Síða 17
Æ G I R 117 við það, að stofn sumra hvaltegundanna minnki nú mjög ört, hefir einnig verið reynt að ná samkomulagi um að skjóta ekki livali undir ákveðinni láginarks- stærð. Japanir hafa verið mjög ófúsir til sam- komulags um bæði þessi atriði, einkum þó það fyrra. Norðmenn segja svo frá, að í vetur liafi Japanir skotið mikið af livölum, sem skolhátar annara þjóða litu ekki við, vegna þess að þeir voru undir þeirri lágmarksstærð, sem Bretar og Norðmenn halda sig við. Hvalveiðimenn eru mjög liræddir mn, að stofn steypirevðarinnar liafi rýrnað mjög verulega undanfarin ár. Árið 1936 gerði steypireyðurin um 57% af heild- artölu veiddra hvala, en 33% 1938. Aftur á móti liefir veiði langreyðarinnar aukizt verulega, en hún er ekki eins eftirsótt, því að tvær langreyðar eru taldar jafn- gilda að verðmæti einni steypireyð. Hvalveiðarnar í ár gengu miklu ver en síðastl. vertíð. Eftir þeim upplýsingum, sem nú liggja fj'rir, er hvallýsisframleiðsl- an í Suðurliöfum um 2 650 þús. föt, eða um 442 þús. smál., og er það um 108 þús. smál. minna en fyrra ár. Þegar litið er á það, að nú tóku þátt í veiðunum 3 verk- smiðjuskipum og 25 hvalbátum fleira, en á vertíðinni 1937—’38, þá er auðsýnt, að vertíðin hefir verið frekar rýr. Danskir sjómenn á þýzkum togurum. Nú nýverið hafa 120 danskir sjómenn fengið skiprúm á þýzkum togurum, er stunda sild- veiðar í Norðursjónum. Mánaðarkaup þeirra er 116.50 ríkismörk, að frádregnum 10% skatti. Helmingurinn af kaupinu er greiddur í þýzkri mynt. Auk Dana hafa margir Hollendingar feng- ið skiprúm á þýzkum fiskiskipum. Mörg hundruð dönskum stúlkum hefir verið boðin vinna í þýzkum niðursuðuverksmiðjum. Markaðshorfur á Spáni. Um það bil sem Franco var að ljúka við að leggja undir sig Spán, voru sendir þangað tveir menn fyrir hönd íslands, þeir Helgi P. Briem, verzlunarerindreki og Kristján Einarsson, framkvæmdar- stjóri S. í. F., og áttu þeir að athuga, iivort ekki niundi unnt að koma á við- unandi verzhmarviðskiplum á ný, milli þessara landa. Frá því þeir komu lil Frakklands urðu þeir að bíða í þrjár vikur, þar til þeir komusl til Spánar. Töf þessi stafaði ekki af óvild Spánverja i garð íslendinga, lieldur eingöngu af því, að slcrifstofurn- ar höfðu ekki undan að afgreiða vega- hréf. Enda var um þær mundir verið að taka inn í landið 400 þús. Kataloníumenn. Menn hvaðanæva að urðu því að híða tímum saman í Frakklandi, áður en þeir komust áleiðis til Spánar. Þegar íslendingarnir komu til Spánar, var þeim lekið ágætlega. Hófu þeir þeg- ar viðræður við einn af erindrekum stjórnarinnar. Öndverðlega í umræðun- um benti erindrekinn, á hvernig verzlun ísl. við Spán liefði verið varið, meðan á styrjöldinni stóð, þar sem að öll fisksala þeirra til Spánar hefði fallið í fang Barse- lonastjórnarinnar. Þetta var staðreynd, sem ekki var unnt að mótmæla, en aftur á móti var henl á, að Barcelonastjórnin hefði greitt hærra verð fyrir fiskinn en fáanlegt var annarsstaðar og auk jiess goldið hann í frjálsum gjaldeyri. Auk þessa var teflt fram jieim rökum fyrir því, að Isl. hefðu á engan hátt verið óvin- veittir Franco-Spáni, þar sem 2 af flutn- ingaskipum Isl. hefðu siglt á liafnir Bur- gos-stjórnarinnar og af henni hefði og ver- ið keyptar 18 000 smál. af salli 1938 og 39, og jiær greiddar í frjálsum gjaldeyri. Urðu báðir aðiljar því sammála um, að

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.