Ægir - 01.08.1944, Qupperneq 11
Æ G I R
177
Hannes Sigurjónsson húsgagnabólstrari
við smíði bátsins.
Eigandi ,,Mórgunstjörnunnar“ er ný-
stofnað hlutafélag í Hafnarfirði, seni heit-
ir „Hafstjarnan h. f.“ Framkvæmdastjóri
þcss er Magnús Guðjónsson i Hafnarfirði,
en hann átti fyrr vélbátinn Njál. Skipstjóri
a Morgunst jörnunni er Guðvarður Vil-
nuindsson úr Hafnarfirði. Báturinn hefur
'erið á sildveiðum í sumar.
iiHafborg", Borgarnesi.
Þann 5. maí síðastliðinn var lokið við
sniíði á nýju skipi i Skipasmíðastöð KEA
a Akureyri.
Skip þetta heitir Hafhorg og hefur ein-
kennisstafina M. B. 76. Yfirumsjón með
siníði þess hafði Gunnar Jónsson ski]ia-
Mniður. Hafborg er 92 rúml. brúttó og hef-
ur 320 hestafla Lister-Dieselvél, en auk jiess
hefur það 8 hestafla hjálparvél sömu teg-
undar. Olíugeymar rúma um 10 smálestir.
I'ullhlaðið ber skip þetta, auk fullra olíu-
geyma, 73 smál. af fiski og 17% smál af ís.
Eigandi Hafborgar er h/f Grímur í Borg-
arnesi. Skipstjóri á henni er Kristján Pét-
ursson, er lengi hefur verið stýrimaður á
v/s Eldborg, sem er eign sama félags.
Vélskipið „Edda".
Þann 23. júní síðastl. var rennt lil sjáv-
ar í Hafnarfirði stærsta skipi, er smíðað
hefur verið í íslandi. Heitir það „Edda“
og hefur einkennisstafina G. K. 25. Skip
þetta cr 184 rúml. brúttó og er smíðað í
Skipasmiðastöðinni Dröfn h/f. Hafnarfirði,
en yfirsmiður var Sigurjón Einarsson
Hdpasmiður.
Teikningar allar gerði Hafliði Hafliða-
son, skipasmiður i Reykjavík. Eftirlit með
smíði skipsins hafði Páll Pálsson, skipa-
smiður i Rvik, en eftirlit með niðursetn-
ingu véla Ólafur Einarsson vélfræðingur,
er einnig gerði teikriingar að stýrisútbún-
aði skipsins. Vélsmiðja Hafnarfjarðar h. f.
íramkvæmdi alla járnsmiði og annaðist
niðursetningu véla, undir stjórn Jóhanns
„Hafborg“, Borgarnesi.
ÓI. Jónssonar og Magnúsar Kristófersson-
ar. Raflagnir annaðist Raftækjaverzlunin
Ekkó Hafnarfirði og málningu Kristinn
Magnússon málarameistari.
Skip þetta er smíðað samkvæmt nýjustu
ísl. reglum um skipasmíðar, en þær eru
þær ströngustu, sem þekkjast á Norður-
löndum. Byrðingur og bönd eru úr eik,
cn vélarreisn og stjórnpallur úr stáli. Aðal-
vél skijisins er 378 hestafla Ruston &
Hornsby dieselvél. Enn fremur eru i sldp-
inu 85 ha. dieselvél fyrir togvindu, og önn-
ur 18 ha. fyrir rafal og' dælur. Dýptarmæli,
miðunarstöð og talstöð er komið fyrir í
kortaklefa. Alls eru mannaíbúðir fyrir 20
manna áhöfn.
Eigendur „Eddu“ er hlutafélagið Einar
Þorgilsson & Co Hafnarfirði. Þeir létu á
sínum tiina smíða slærsta togarann, sem
enn hefur verið smíðaður fyrir Islendinga
og nú hafa þeir látið smíða stærsta vél-
skipið, sem gert hefur verið á íslandi.
Skipstjóri á „Eddu“ er Sigurður Andrés-