Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.02.1947, Qupperneq 5

Ægir - 01.02.1947, Qupperneq 5
Æ G I R 35 En íslendingar dotta viðar á verðinum en í sambandi við öflun markaða. Fátt er okk- ur jafnnauðsynlegt og að fylgjast sem ná- kvæmast með þvi, hvað gerist hjá öðrum fiskveiðiþjóðum. Okkur er ekki aðeins nauðsynlegt að fvlgjast með þeirri þróun, sem á sér stað í sambandi við framleiðslu- háttu alla, við þurfum einnig að kunna sem gleggst skil á því, hvað íiskimaðurinn á hverjum stað fær fvrir aflann, hver fram- leiðslukostnaðurinn er, hvernig aflinn er hagnýttar, hvað hinar ýmsu fiskveiðiþjóðir fá fyrir framleiðslu sína i markaðslöndun- um o. s. frv. Þessa könnunarstarfsemi rækj- uni við íslendingar slælega, að ekki sé meira sagt. Reynd þú, sem þessar línur lest, að fara til þeirra aðila, sem helzt ættu að safna gögnum um ofangreind atriði og inntu þar eftir, hvað fiskimaðurinn í Noregi, Kanada og Nýfundnalandi fær fyrir fisk- inn, lifrina og annað sem hann aflar, hvað þar kostar að framleiða hvert kg af freð- fiski, saltfiski, harðfiski o. s. frv., og spurðu jafnframt um, hvað þessar þjóðir fá fyrir sjávarframleiðslu sina í hinum ýmsu markaðslöndum. Láttu mig síðan vita, Iiversu þú hefur orðið vísari. Nálega tvö ár eru nú liðin siðan styrjöld- inni lauk. Þennan tíma höfum við ekki svo mikið sem haft sendifulltrúa í Noregi. Má þó ljóst vera, hvílík nauðsyn er á því að hafa þar einhvern erindreka. Úr því við liöfum vanrækt að hafa sendifulltrúa í Noregi, svo sem raun ber vitni, er þess Irauðla að vænta, að við höfum tekið upp þann hátt að hafa fiskfulltrúa (Fiskeriattaché) við sendiráðin eða í þeim Jöndum, þar sem þeirra er mest þörf. Norðmenn vita hvers virði það er að hafa slíka sendimenn, enda eru fiskifulltrúar frá þeim við mörg sendiráðin og víðar. Þótt sjávarútvegur sé ekki höfuðatvinnuvegur hjá Svium og Dönum, telja þeir samt nauð- synlegt að hafa fiskifulltrúa í ýmsum lönd- um. íslendingar eiga tvímælalaust að taka upp þá skipun að hafa sérstaka trúnaðarmenn meðal þeirra þjóða, sem aðallega keppa við okkur um markað fyrir sjávarafurðir. Þessir menn verða að vera vel menntaðir og hafa yfir að ráða sérstakri reynslu og Jiekkingú i sambandi við starfssvið sitt. Þeirra verk á að vera það, að safna upp- lýsingum um fiskverð, markaðsverð, fram- leiðslukostnað, framleiðsluháttu, tækni í fiskiðnaði o. s. frv. Þessar upplýsingar ber svo að senda hingað heim til einhverrar ákveðinnar stofnunar, sem falið er að vinna úr þeim. Með þessum hætti ætti það að vera nokkurn veginn tryggt, að við hefð- um ætið spurnir af því helzta, sem er upp á teningnum hjá öðrum fiskveiðiþjóðum, og okkur varðar að vita. Það er áreiðanlega ekki einhlitt að eiga glæsileg framleiðslutæki, hvort heldur er á sjó eða landi og liafa á að skipa afbragðs mönnum til þess að vinna við þau. Því varð mér á að spyrja í upphafi: „Sofa íslend- ingar á verðinum?" Er það kannske að ófyrirsynju að um slíkt er spurt? Ber um- hyggja okkar fyrir því að hafa hemil á fram- leiðslukostnaðinum vott um vökula varð- mennsku? Ber barátta okkar fyrir öflun markaða vott um það, að við séum árvök- ulir? Ber gagnasöfnun okkar um aðrar fisk- veiðiþjóðir vott um, að við séum liðtækir varðbergsmenn ? Þjóð, sem hefur hafizt eins af sjálfum sér og íslendingar, má ekki láta það henta sig að skorta skilning á þeim hlutum, sem hér hefur verið drepið á. Hún má aldrei spara eyrinn, en kasta krónunni, allra sízt í sambandi við þann atvinnuveg, sem hún á velfarnað sinn fyrst og fremst undir. 15. fcbrúar. L. K.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.