Ægir

Årgang

Ægir - 01.02.1947, Side 20

Ægir - 01.02.1947, Side 20
50 Æ G I R netto tonnatal samkv. a.-lið verði 10% minna en samkv. Dónárreglunni, og 16% minna en eftir þýzku reglunni. Ef stærð vélarúmsins er þannig, að ákvæðin komi undir b-lið, getur útkoman orðið óeðlileg, þar sem engin takmörk eru sett um frá- dráttinn. Netto lonnatalið getur farið niður fyrir helming af brútto tonntölu. — En lög eru lög, og auk Stóra-Bretlands og sam- bandslanda þess er farið eftir „British Rule“ í Danmörku, Þýzkalandi, Banda- ríkjum Norður-Ameríku, Noregi, Frakk- landi, Grikklandi, Rússlandi, Finnlandi, Spáni, Portúgal, Ítalíu, Argenlinu, Hollandi, Austurríki, Ungverjalandi og Japan. Hlutfallið milli brútto og netto tonna- tölu er mjög á reiki. En meðal útkoman sýnir, að því er snertir seglskip, að netto tonnatalan er um 95% af brútto tonnatöl- unni, og er það ekki svo mjög breytilegt eftir því livaða reglum er farið eftir. Að þvi er snertir venjideg vélskip, er þetta öðru niáli að gegna. Sé miðað við „Britisb- Rule“, verður netto tonnatalan um 64% af brútto tonnatölu, sé miðað við Dónárregl- una þá 74%, og sé miðað við þýzku regluna, verður tonnatalan um 80% af brútto tonnatölunni. Sé miðað við „Lloyd’s Register“, og öll skip yfir 100 rúmlestir tekin me^S, verður meðal útkoman, að netto tonnatalið er 62% af brútto tonnatölunni. Hið bogamyndaða rúmtak skipsins er ekki þess eðlis, að hægt sé að nota nákvæm- lega hreina matamatik við útreikningana. En „Simpsons“ regla fer svo nálægt þvi rétta rúmmáli, að ef reglan er réttilega notuð, er hún talin nægilega nákvæin, og nákvæmari en liægt er að taka málin i skipinu, sem eru grundvöllurinn eða for- sendurnar fyrir útkomunni. „Simpsons“ reglan er viðurkennd og enginn ágreiningur um hana. Þá skyldi maður nú ætla, að liægt væri að ganga hreint til verks, en svo er þó ekki. Því það er vitað mál, að útgerðarmenn- irnir fá skipasmiðina til þess að teikna og gera skipin þannig, að útgjöldin verði sem minnst. Þetta gera allir skipasmiðir og þeir sem lengst komast eru mest metnir og eftir- sóttir. Eitt af því, sem er mest áberandi, er „Shelter Deck“ undanþágan, sem er frani- kvæmd á eftirfarandi hátt: Aftast á skipinu er stutt lúkuop, en jafn breitt og hin lúkuopin, ekki meira en 12" há umgerð (karmur), enginn „skálk“-út- búnaður. Þverþil á millidekkinu er framan og aftan við lúkuopið, austurop á báðum hliðum. Bilið milli þverþilanna má ekki vera minna en 4 fet. í fremra þverþilinu eru „bráðabirgðar“ hlerar og í öllum þver- þilum þar fyrir framan. Millidekkið, þannig útbúið, er „exeptcd from measúrement (undanskilið mæl- ingu). Hér hefur í rauninni ekki verið framið neitt lagabrot, skipasmiðurinn er sýkn saka. Það sem gerzt hefur, er að lokunar- úlbúnaðurinn fullnægir kröfum friborðs- laganna, en ekki kröfum skipamælinga- iaganna. Skip nokkurt rúmlega 5000 rúmtonn brúttó, lagði af slað nýsmíðað frá Svíþjóð. Millidekksrúmið um 1500 rúmtonn var út- búið í samræmi við það, sem að ofan getur, og ekki mælt með, samkvæmt „British Rule“. Það er sagt sem svo, að mæling skipa sé „international“ og svo er það, og að eilt rúmtonn er 100 teningsfet ensk. Það er ekki hægt að ætlazt til þess, að allir fannenn vorir viti um allar þessar „kúnstir og kenjar“. Svo sem það, að láta ekki „skálk- haka“ á afturlúkuna á skipi, sem siglir með millumdekksundanþágu. Skipin þurfa að vera útbúin með mörg mælingabréf í sam- ræmi við lög varðandi þau lönd eða skipa- skurði, sem förinni er heitið til. Því að ef yfirvöldin á staðnum eiga að fara að áætla tonnatöluna, verður sú áætlun frekar þeiin í vil en skipseigendunum. Enda hefur skip- sljórinn ekki tíma til þess að deila um þessa liluti, og auk þess ekki liægt að ætlast til að að hann geti það, því að málið er svo íiókið. Bezta lausnin er að leggja plöggin á borðið.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.