Ægir - 01.04.1951, Síða 4
80
Æ G I R
Árni Vilhjálmsson:
Pættir úr kynnisför til Noregs.
Þess var getið i síðasta blaði Ægis, að á vegnm Fiskifélagsins hefðu
sjö menn farið í kgnnisför til Noregs. Þessir menn völdust til ferðarinnar:
Úr Sunnlendingafjórðungi: Iiarvel Ögmundsson útgerðarmaður i Ytri-
Njarðvík. Úr Hafnarfirði og Reykjavík: Ólafur Elísson framkv.stj. í Hafn-
arfirði. Úr Vestfirðingafjórðungi: Einar Guðfinnsson útgerðarmaður i Bol-
ungavík. Úr Norðlendingafjórðungi: Helgi Pálsson, erindreki Akuregri. Úr
Austfirðingafjóðungi: Árni Vilhjálmsson, erindreki Segðisfirði. Úr Vest-
mannaegjum: Gísli Magnússon útgerðarmaður i Egjum. Ráðgert var, að
Víglundur Jónsson, útgerðarmaður i Ólafsvik, færi af Snæfellsnesi, en sök-
um þess, að bátur hans sökk daginn áður en ferðin skgldi hefjast, varð
hann að vera eftir. — Arnór Guðmundsson, skrifstofustjóri Fiskifélagsins,
var fararstjóri hópsins.
Eftir heimkomuna réðist svo, að Árni Vilhjálmsson ritaði ferðasöguna
í eins konar dagbókarformi, en Arnór gerði þeim hlutum skil í fiskveið-
um, fiskverkun og félagsstarfi Norðmanna, er hann sá og heyrði um í ferð
sinni og ætla má, að okkur varði nokkuð. Dagbólcarþættir Árna birtast í
þessu blaði, en greinar Arnórs í þvi næsta. L. K.
Hinn 20. febr. voru ferðafélagarnir mætt-
ir hjá Davíð Ólafssyni fiskimálastjóra, i
skrifstofu hans í Fiskifélagshúsinu, Reykja-
vík. Skýrði hann okkur frá, hvernig för-
inni skyldi haga í aðalatriðum, og jafn-
framt að norsk fiskveiðayfirvöld mundu
greiða götu okkar, er þangað kæmi, sem
þeir gerðu með ágætum. Það skal fram
tekið, að ferðaþættir þessir verða ekki nein
landlýsing af Noregi. Það hafa svo margir
gert áður, að ég mundi ekki bæta þar um,
enda nú ferðast að vetrarlagi — heldur
aðeins frásögn af því, sem fyrir augu og
eyru bar á ferðalaginu. Ferðin var farin
til þess fyrst og fremst að sjá með eigin
augum útgerðarhætti Norðmanna, svo sem
fiskverkun og fiskiðnað alls konar, einnig
fisk- og síldveiðar þeirra á yfirstandandi
vertíð, sölufyrirkomulag þeirra á sjávaraf-
urðum o. fl. Verður í þessum þáttum vik-
ið að hverju um sig, eftir því sem til náð-
ist á hverjum stað. Ferðin hófst með því
að farið var frá Reykjavik á tveim bíluni
suður á Keflavíkurflugvöll þriðjudagskvöld-
ið 20. febr. Þangað var komið kl. 21.30 í
norðan stormi. Skyldi fljúga til Oslo næsta
morgun kl. 8 frá Keflavík.
Er þangað kom, var okkur sagt, að flug-
vélinni hefði seinkað og væri á Gander-
flugvelli, mundi ekki koma fyrr en um
hádegi næsta dag. Við því var ekkert að
segja, og fengum við svo fyrirmyndar her-
bergi á Hótel Keflavík. Urður við Einar
herbergisfélagar og var svo lengst af ferð-
arinnar.
Farseðlar höfðu verið keyptir hjá amer-
íska flugfélaginu „Pan American World
Airways“ frá Keflavík—Oslo og aftur Oslo
—Keflavíkur. Heldur félag þetta uppi ferð-
um vikulega frá New York til Stokkhólms,
með viðkomu á Keflavik og Oslo.
Vélin, sem við áttum að ferðast með,