Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1951, Blaðsíða 33

Ægir - 01.04.1951, Blaðsíða 33
Æ G I R 109 Fiskiskip úr stáli. Staðhæft var í enska tímaritinu „The hishing News“ 10. febr. s.l., að A/S Stord skipasiníðastöðin í Bergen hafi smíðað Lskiskip úr stáli fyrir mun minna verð en h'éskip af sömu stærð mundi kosta. Svo l;dandi upplýsingar voru i ritinu um skip þetta: Skipið heitir „Sigurdson“. Kjölurinn að Þvi var lagður 6. sept. 1950. Hinn 11. nóv- eniber var skipið sett á flot og 9. janúar 1951 var það afhent altilbúið. Smíði þess hefur þvi tekið röska fjóra mánuði. Skipið kostaði með öllum útbúnaði um 195 þús. kr. íslenzkar. Aðalmál skipsins eru: Lengd ef enda og á 100 fet 10 þuml., lengd a stafna B. P. 95 fet 5 þuml., breidd 22 fet, d^TPt M. 1. d. 11 fet. ttúmmál lestarinnar er 8000 rúmfet, og niUndi lestin því taka um 250 smál. af síld, 1850 mál. Bolur skipsins er allur úr stáli, en yfir- hygging úr aluminium, og er það allt raf- soðið. Það er teiknað í því augnamiði að fiska með dragnót og línu, en í fram- kvæmdinni hefur það verið útbúið til veiða með botnvörpu. 1 skipinu er 4 lesta vökva- knúin vinda. Þilfarið er úr stáli, og á því eru tvö lúkuop. Meðal tækja í skipinu er dýptarmælir og miðunarstöð. Því er ætlað að flytja með sér doríur úr stáli, en í þeim. má stunda fiskveiðar. ,,Sigurdson“ er útbúinn með B. & W. Alpha Diesel, 240—265 hestafla og 10 kw Lister hjálparsamstæðu. Hraði skipsins í reynsluför var 11 sjómilur. Ibúð er fyrir 30 menn í fjórum klefum. Tveir eru með 2 hvílum, einn með 4 hvílum og einn með 12 hvílum. Klefar og dag- stofa er þiljað eikarspónviði. Innangengt er milli stjórnklefa, vélarrúms og ibúðar skipshafnar, og þarf þvi ekki að fara út til þess að koinast á milli. Þurrkunarklefi, þvottaklefi og steypibað er í skipinu. Þannig er lýsing „The Fishing News“ á skipi þessu.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.