Ægir - 01.04.1951, Page 11
Æ G I R
87
sé komið fyrir, að herpinótabát-
l»', sem hékk í davíðum á síld-
veiðiskipi, lenti á einu húsi, sem
búið var í, og gekk gegn um
vegginn og inn i stofu, og talin
niildi að ekki hlauzt slys af.
An'nars mun ekki almennt búið
svona nærri höfninni. Géysimik-
>11 skipafjöldi var þarna, bæði
sildveiðiskip og flutningaskip,
enda stóð vorsíldarvertíðin sem
hæst. Aðstaða öll þarna við sjó-
inn er hin ákjósanlegasta. Fisk-
sölutorg er þarna við höfnina,
niátti þar sjá í steinsteyptum
þrórn lifandi fisk til sölu í hæ-
inn og nágrennið ásamt hvers
konar öðrum fiski, sem fiski-
mennirnir sjálfir voru að selja.
hennan morgun gengum við
nokkrir saman æði langan veg
til þess að skoða Haraldshaug-
>nn. Er þar minnismerki yfir
Harald hárfagra, sem reist hefur
verið á hauginn. Er það geysi-
bár áletraður steinstólpi ekki
minna en 20 m hár. í kring um
stólpann eru 32 steinar, sem
tákna fylki þau, er Haraldur réði
yfir á sinum stjórnarárum, og
eru á þá hoggin fylkjanöfnin öll.
Þessu næst heimsóttum við skrifstofu
..Norges sildesalgslag“, sem þarna hefur
bækistöð sína, eina af fleirum, sátum við
bar æði stund og ræddum við helztu menn
þessarar stofnunar þar á staðnum um eitt
°g annað varðandi síldarútveginn.
Þennan dag var okkur sýnt stórt salt-
upplag, sem þarna er úti á eyju, er Hris-
ey heitir. Er það elcki löng leið á bát.
Stofnun þessi heitir „Saltdepotet a/s“.
Geysistórt og mikið saltgeymsluhús er í
eigu hennar og er það eins og flestar stöðv-
ar þarna, byggt alveg fram við sjóinn. Að-
býpið er svo mikið að bryggja er sama
sem engin, heldur leggjast skipin fast að
húsveggnum. Notaður er stór krani með
greip, sem annast upp- og útskipun, þá er
þarf að afgreiða saltið til skipa. Hafa þeir
sjálfir útbúnað til þess að mala saltið mis-
jafnlega gróft, eftir því til hvers á að nota
það, t. d. til sykursöltunar á síld og jafnvel
borðsalt. Kaupa þeir aðeins fyrsta flokks
Miðjarðarhafssalt nokkuð gróft, vitanlega
í stórum förmum. Er þetta geysimikið fyrir-
tæki með útibúi í Lófót.
Vorum við í boði verzlunarmannafélags-
ins uni kvöldið og nutum þar mikillar
gestrisni og velvildar.
3. marz, laugardagur.
Kl. 9y% fórum við í boði Bakkevik, sem
áður getur, í stórum bíl áleiðis út í eyju,