Ægir

Árgangur

Ægir - 15.03.1960, Blaðsíða 10

Ægir - 15.03.1960, Blaðsíða 10
84 ÆGIR fram, að um of mikla fjárfestingu sé að ræða í fiskiskipaflotanum, — en svo virð- ist vera, þegar miðað er við framboð af sjómönnum. 1 árslok 1959 voru 68 fiskiskip í smíð- um fyrir íslenzka aðila erlendis — auk þeirra, sem verið var að smíða innan- lands, og er hér um að ræða töluvert fleiri skip en nemur endurnýjunarþörf eða eðlilegri viðbót, þegar miðað er við möguleikana á að fá mannskap á þau. — Ef það vandamál væri ekki alvarlega fyr- ir hendi, væri þessi stækkun skipastólsins ánægjuleg, og nauðsynleg miðað við hina miklu umframafkastagetu vinnslustöðv- anna. Á árinu 1959 var um töluverðan skort á íslenzkum sjómönnum að ræða, svo að ráða þurfti fjölda Færeyinga til starfa á flotanum. — Skipaskoðunar- stjóri áætlar í athyglisverðri grein, sem birtist í 1. tbl. Ægis þ. á., að nær 900 sjómenn þurfi á þessi nýju skip, þannig að búast má við töluverðum sjómanna- skorti næstu mánuði og jafnvel ár, að öðru óbreyttu. — Sjálfsagt verður einhverjum gömlum skipum lagt og er ekkert við því að segja, en þurfi að hætta útgerð til- tölulega nýrra og góðra skipa er ver af stað farið en heima setið. — Oft er talað um, að ákveðinn — helzt nýr — bátur hafi aflað fyrir jafnhárri upphæð í gjald- eyri á einu ári og hann kostaði. — Slíkir útreikningar mega liggja á milli hluta, en mesti ljóminn fer af þessu afreki, ef leggja hefur þurft í staðinn öðrum báti, vegna manneklu, sem skilað gæti jafn- miklu gjaldeyrisverðmæti. Hér ber allt að sama brunni — meira hefur verið unnið af kappi en forsjá í íslenzkum sjávarút- vegi. Ómótmælanleg afleiðing er sú, að fyrirtækin almennt bera sig ekki eins vel og geta ekki greitt jafngott kaup og ella né geta þau eytt jafnmiklum fjármunum í rannsóknarstarfsemi eða hagkvæma end- urnýjun. Hér er um mikið og alverlegt vanda- mál að ræða, sem leysa þarf hið allra fyrsta, vandamál, sem vonandi verður at- hugað og rætt án þess að rómantík eða pólitík verði blandað þar í. Hin nýja stefna. Þá endurskipulagningu, sem gera þarf í fiskiðnaðinum, ætti helzt að sk®ða í ljósi breytinga á afstöðu ríkis- og bæjar- félaga, svo og ýmissa opinberra og hálf- opinberra sjóða, til fjárfestingarmála í heild. — En eins og kunnugt er, hefur hið pólitíska vald mikil áhrif hér í landi, og hefur því miður mjög oft neytt þeirra áhrifa á neikvæðan hátt, þegar u,m er að ræða ýmsa fjárfestingu, — og má því segja, að allra helzt sé þörf hugarfars- breytinga á þeim vettvangi. — Það hefur nefnilega komið fyrir alltof oft hin síðari ár, að sú fjárfesting til uppbyggingar at- vinnutækja, sem hér um ræðir, hefur ver- ið framkvæmd af lítilli framsýni, og hefur ekki orðið til þess að auka eða bæta lífs- kjör fólks á viðkomandi stöðum, vegnaþess að um taprekstur hefur verið að ræða hjá mörgum þessara fyrirtækja. f þeim tilfellum er atvinnutækið ekki lyftistöng heldur byrði — ekki einungis viðkomandi byggðarlagi heldur viðkomandi atvinnu- vegi og allri þjóðinni. — Þegar litið er á sjávarútveginn sem heild kemur í ljós, að vandamál hans má að verulegu leyti rekja til þessarar stefnu. — Á sama hátt og Island á að hafa yfirburðaaðstöðu borið saman við flestar þjóðir að því er snertir fiskveiðar og hagnýtingu sjávaraflans gefur auga leið, að ýmsir staðir á strand- lengju íslands veita betri aðstöðu til fisk- veiða en aðrir. — Ef þessi staðreynd er höfð í huga og eftir henni breytt, má gera sjávarútveginn langtum samkeppnis- færari en nú er og auka afköst hans að miklum mun. Hér er ekki verið að mæla með einu allsherjar áætlunarráði heldur frjálsu markaðskerfi. Spurningin er hvort ekki ætti að hafa fiskverðið frjálst (ofan við tiltekið lág- marksverð). Umframafkastageta fisk- vinnslustöðvanna er mikil, svo sem áður

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.