Ægir

Árgangur

Ægir - 15.03.1960, Blaðsíða 18

Ægir - 15.03.1960, Blaðsíða 18
92 ÆGIR Mjölvinnslustöð undir beru lofti í Perú. Ansjósunum er stoypt nf bflum í þróna til hægri. Yélar eru allar nýjar. hvort opin eða með lágum veggjum, og hráefnið flyzt á færibandi í þar til gerða kvörn, sem malar það og býr það undir pressunina. Límavatnsverksmiðjur eru engar í Perú sem stendur, en tvær er í byggingu í Chimbota og Callao. Mjölsekkjunum er staflað upp úti, enda þarf ekki að taka tillit til veðurs, þar eð sjaldan eða aldrei rignir á strönd Perú. Hinn kaldi Humbolt-straumur ræður strandloftslaginu, og svalinn frá hafinu og hitaloftið yfir eyðimörkinni veldur því, að loftið þéttist í mikilli hæð, og þó að raki sé talsverður, er það viðburður, að hann valdi úrfelli. Margar þjóðir reka fiskimjölsverk- smiðjurnar í Callao auk Perúbúa sjálfra, og má þar nefna Frakka, Kínverja, Jap- ani, ítali, Spánverja og Þjóðverja. Fiskimjölið er nú aðalútflutningsvaran í fiskiðnaði Perú og að magninu til allt að þrefalt meiri en þær afurðir, sem næst- ar koma — niðursoðinn fiskur og frystur fiskur. Ansjósuveiðarnar, sem mjöl- vinnslan byggist á, eru stundaðar svo skammt frá landi og vinnslustöðvarnar eru svo nærri sjó, að bátarnir, sem leggja af stað í dögun, koma aftur um miðj- an dag drekkhlaðnir. Þó að flestir séu fullir trausts » og bjartsýni á framtíð fiskimjölsiðnaðarins í Perú, hafa hinir gætnari menn lagt fyrir sig samvizku- spurningar og leitast við að svara þeim. í fyrsta lagi: Enn er gnægð af ansjós- um á miðunum og stutt til fanga. En enginn er kominn til að segja um, hve tengi það ástand helzt, og hvort ekki geti verið um ofveiði að ræða. — Rannsóknir hafa staðið of stutt yfir til að þær geti gefið nokkra hugmynd um, hvað sé eðlileg ansjósuveiði. Ýmsir aðilar, þar á meðal stjórn gúanó-iðnaðarins, leggja sig þó alla fram til að geta fengið svar við þess- ari spurningu sem fyrst. Gúanó-iðnaður- inn á mikið komið undir ansjósuveiðunum, því að fuglarnir, sem leggja til gúanóið, lifa á ansjósum svo að segja eingöngu. Fiskimjölsiðnaðurinn og gúanó-iðnaður- inn hafa því sameiginlegra hagsmuna að gæta um öflun hráefnis. I því skyni að takmarka veiðarnar, hefur Perústjórn bannað að setja á fót fleiri vinnslustöðv- ar. Hins vegar eru engar hömlur lagðar á frekari stækkun stöðvanna, svo að þörf- in fyrir hráefni hefur aukizt, eins og glögglega sézt á auknu magni útflutnings- ins. I öðru lagi: Þó að verð á perúsku fiski- mjöli sé stöðugt og tiltölulega hátt eins og er, getur þá ekki farið svo, að það lækki fyrr en varir? Ein af ástæðunum fyrir núverandi vel- gengni fiskimjölsiðnaðarins í Perú er minni framleiðsla skandinavísku land-

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.