Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.04.1962, Qupperneq 18

Ægir - 01.04.1962, Qupperneq 18
132 ÆGIR an þær voru að frjósa. Slíkar blokkir eru til einskis nýtar. 4 og 5) Kantar ósléttir. Við teljum að flestar blokkir með þessum galla hafi verið frystar í pönnum,. sem voru svo úr sér gengnar, að kantar þeirra voru hvergi nærri beinir eða hornréttir. í sumum til- fellum hefur auðsjáanlega verið trassað að setja lista á milli blokka. Þá má líka telja varhugavert að nota aluminium list- ana, nema þeim sé vel við haldið og þeir réttir strax og beygjur eða beyglur koma á þá. — Fletir blokkanna voru einnig mjög misjafnlega sléttir, mest mun það stafa af lélegum pönnum (botnarnir farnir að ganga upp) og lélegum plötum í tækjum (binding þeirra farin að gefa sig). Þarna er einnig að leita skýringa á misþykkt sumra blokkanna og því, að sumar blokkirnar voru blátt áfram bogn- ar. Við skulum líta á þetta mál frá sjón- arhóli kaupenda. Þeir, eins og við, vilja fá sem rnesta nýtingu úr því hráefni, sem þeir kaupa. Það ætti ekki að vera neitt launungamál, að þeir fá lélegri nýtingu úr íslenzku blokkunum en þeim kana- dísku, norsku og dönsku, mest vegna þeirra galla, sem ég hef talið hér að framan. Við skulum vera þess minnugir, að enda þótt hráefnið sé gott, þá hefur það ekki allt að segja við sölu fiskafurða og keppinautar okkar hafa einnig oft ágætt hráefni. Við fáum mjög gott verð fyrir okkar blokkir, þegar þær seljast. Ég er hins vegar ekki viss um að Islendingar geri sér grein fyrir þeirri döpru stað- reynd, að vegna lélegrar nýtingar og hás verðs á íslenzku blokkunum, kaupa flest- ir framleiðendur fiskrétta í Bandaríkj- unum fyrst sínar blokkir í Kanada, síðan í Noregi eða Danmörku. Þegar þessar birgðir þrýtur, kaupa þeir frá íslandi. Það er því kominn tími til að taka þessi vandamál fastari tökum en gert hefur verið og við skulum allir í samein- ingu reyna að leggja okkar fram um að bæta lögun blokkanna. Ef allir leggjast á eitt, mun okkur takast þetta. 1962 1961 1962 1961 Fiskafli Norðmanna ÞORS KVEl :ðin Eeildarafli Hert Saltað Isað og Meðala- smál. smál. smál. frgst smál. lýsi smál. 31/4 61.661 22.065 18.983 20.613 24.788 1/4 68,521 29.716 22.542 16.263 30.548 Heildarafli hl. SÍL D VEI ÐIN 31/3 888.065 Lokatala 742.388 Söltuð Fryst lirognhl. lirognhl. 18.849 21.399 17.995 19.669 Allir sjómenn, eldri og yngri, þurfa að eignast bókina ENSK LESTRÁRBÓK handa sjómönnum. Þar er að finna ensk heiti ó öllum hlutum ó skipi og í dokk. Auk þess er bókin góður leiðarvísir fyrir sjómenn í erlendum höfnum. — Kostar 40 kr. í sterku bandi. Bókaverzlun ísafoldar.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.