Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1963, Blaðsíða 13

Ægir - 01.02.1963, Blaðsíða 13
Æ GIR 39 Til Portugal var aðeins fluttur um helmingur þess magns, sem Portugalar vildu kaupa, sökum þess að meiri fiskur var ekki til. Til Englands voru seld um 2.900 tonn, ttiest megnis lægri gæðaflokkar af þorski °S löngu, og til Grikklands um 2.350 tonn milli. 0g smáfiskur. Stærsti kaupandi verkaðs fisks var sem fyrr Brasilía, en þangað voru seld um 2.300 tonn. Til Panama voru seld 560 tonn og Venezuela 175 tonn. I öllum þess- um löndum eru sölumöguleikar á mun meira magni en hægt hefur verið að selja ti’amleiðslunnar vegna og þá sérstaklega 1 Brasilíu, sem er feikn mikið neyzluland. Engin viðskipti voru við Cuba á árinu yegna hins breytta ástands, sem þar rík- lr> en Cuba hefur undanfarin ár verið ^ikilvægt markaðsland okkar. I heild má segja um alla okkar saltfisks- ^ai'kaði, að þörf þeirra var hvergi nærri fullnægt og langt frá því að S.I.F. gæti smnt allri eftirspurn eftir saltfiski. Nokkur verðhækkun varð á saltfiski tyá árinu áður, og var útborgunarverð til íélagsmanna kr. 12,50 pr. kg. af 1. fl. stórfiski. Til viðbótar koma svo loka- &reiðslur að loknum reikningsskilum fyrir arið. Afskipanir fisksins gengu greiðlega, og var fiskurinn fluttur úr landi svo að segja Jafn fljótt og hann varð útflutningshæfur. Greiðsla andvirðis var að öllu jöfnu innt af hendi strax að lokinni lestun. Söluhorfur á þessu ári mega teljast goðar. Birgðir í neyzlulöndunum eru litl- °g ætlað er að kaupendur séu reiðu- búnir til kaupa og afskipanir geti hafizt strax og fiskur er tilbúinn til útflutnings. Ingvar Vilhjálmsson: Skreiðin FramleiSslan 1962 Árið 1962 varð skreiðarfram- leiðslan lítil. Sam- kvæmt bráða- birgðatölum Fiski- félags Islands hefur verið hengt upp um 37000 blaut tonn sem verða um 6300 tonn þurrt magn. v erxun gekk nokkuð vel, en sums staðar varð töluvert af framleiðslunm fyrir jarðslaga. FramleiSsla NorSmanna 1962. Hinn 30. júní 1962 var skreiðarfram- leiðsla í Noregi komin upp í 77531 tonn, en var á sama tíma árið 1961 108.325 tonn miðað við slægðan og hausaðan fisk. VerSlag á skreif) 1962. Skreiðin, sem framleidd var árið 1962 hækkaði yfirleitt til Afríku um £4:12:00 per tonn, en keilan hækkaði samtals um £18:10:00 og var verðlag allt á skreið fært í sama verð og Norðmenn selja á, nema að verð á svartri skreið og úrkasti er sérstakt fyrir ísland, þar sem Norð- menn meta ekki skreið með jarðslaga í neinn sérflokk. Verð á skreið til Italíu hækkaði einnig: Italiener úr £300 :00:00—£305:00:00 í £340:00:00, Finmarken í £280:00:00, en verð á þessari tegund sem í fyrsta sinn var seld til ítalíu vorið 1962 var þá £260:00:00. Útflutningur á skreið. Útflutningur á framleiðslu ársins hófst í ágúst og september og hafa afskipanir gengið mjög vel og má segja að mest öll framleiðslan frá 1962 verði farin í febr.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.