Ægir - 01.02.1963, Blaðsíða 14
40
ÆGIR
/marz. Það hefur aldrei skeð fyrr í sögu
Skreiðarsamlagsins að svo fljótt sé lokið
við afskipun framleiðslu næstliðins árs,
enda voru sölusamningar þannig gerðir
að kaupendur skyldu vera búnir að Ijúka
móttöku í janúarlok, en endanleg fram-
kvæmd á afgreiðslu fer eftir skipakosti.
Ég skýrði frá því í grein minni í 1.
tölublaði Ægis árið 1962 að æskilegt væri
að útflutningi til Nigeríu væri hagað
þannig að afskipanir séu sem jafnastar
hvern mánuð ársins, en vegna minnkandi
framleiðslu og aukinnar eftirspurnar
verður hægt að ljúka afskipunum á fram-
leiðslu síðasta árs miklu fyrr en hægt
hefur verið áður.
TJtflutningur til Italíu hefur gengið vel
og hefur Skreiðarsamlagið lokið við að
flytja út rúm 500 tonn af Afríku-skreið
sem sá markaður vildi kaupa og er ekki
til meira magn á vegum Samlagsins. Verð-
ið til Ítalíu hefur verið gott fyrir Itali-
ener og Afríkufisk og gerum við okkur
vonir um að ítalir muni halda áfram að
kaupa Afríkuskreið eins og gerzt hefur
síðastliðið ár.
Markaðshorfur 1963.
Markaðshorfur virðast góðar, en eftir
því sem frétzt hefur, þá munu birgðir
Norðmanna um áramót hafa verið tölu-
verðar, og hafa Norðmenn látið í ljós,
að þrátt fyrir minni framleiðslu 1962 en
1961 þá muni þeir eiga nægilega skreið
fyrir flesta markaði þangað til nýja fram-
leiðslan frá 1963 kemur fram.
Það er erfitt að spá um verðbreytingar,
en þó má telja það eðlilegt að með vax-
andi eftirspurn þegar fer að líða á árið
1963, þá megi gera ráð fyrir einhverjum
hækkunum.
Ég vil eins og áður hvetja alla fram-
leiðendur til að vanda framleiðslu sína
sem bezt og reyna eftir beztu getu að taka
hana inn á réttum tíma, ef tíð, veðurfar
og ástæður leyfa, svo að með því móti
verði dregið úr því magni sem í matinu
er flokkað sem svört skreið.
Erlendur Þorsteinsson:
Saltsíldin
í yfirlitsskýrslu
um saltsíldina
1961 er þess get-
ið, að er hún var
skrifuð voru ó-
seldar ca. 24.600
tn. af Norður- og
Austurlandssíld.
Allverulegur hluti
var cutsíld, sem
ekki var samn-
ingshæf vegna ým-
issa galla. Þá var
einnig nokkuð af
snemmveiddri sykursíld — magurri — og
svo nokkuð af allgóðri seinveiddri sykur-
síld, sem söltuð var umfram samninga og
í heimildarleysi.
Meginmagn þessarar síldar tókst að
selja, sumpart eins og hún var, en nokk-
urt magn flakað og selt þannig, samtals
tókst að selja til útflutnings 15.594 tn.
af þessari síld og þegar tillit er tekið til
þess að nokkur hluti var flakaður má
telja að ca. 20.000 tn. hafi tekizt að selja.
Það sem afgangs var mun hafa farið til
síldarverksmiðjanna s.l. sumar eða til
fóðurs, nema nokkur hundruð tunnur, er
seldar voru til útflutnings s.l. sumar.
Alla þessa síld þurfti að selja á mun
lægra verði, en verð Síldarútvegsnefndar
var árið 1961 fyrir samningshæfa síld.
Hafa því síldarsaltendur þeir, er þessa
síld áttu, orðið fyrir tilfinnanlegu tjóni.
En þetta sýnir ljóslega, hve litlu má muna
á hinum viðkvæma síldarmarkaði. Sér-
staklega ætti þetta að vera vísbending um
nauðsyn þess að vanda verkun síldarinn-
ar og salta ekki nema þar til hæfa síld.
Norður- og Austurlandssíldin:
Svo sem kunnugt er dróst nokkuð s.l.
sumar að síldveiðar hæfust vegna verk-
falls og verkbanns á síldveiðiflotanum. Á
á