Ægir - 01.02.1963, Blaðsíða 17
Æ Gr IR
43
leit en úr henni dregið. Þess vegna skul-
um við vona að veðurguðirnir verði okk-
ur jafn eftirlátir og s.l. sumar.
Suður- og Suðvesturlandssíldin:
Söltun síldar á Suður- og Suðvestur-
landi er yfirleitt að færast í það horf að
hún byrjar seinna en áður og allveruleg-
ur hluti er saltaður í byrjun næsta al-
uianaksárs til að uppfylla þá samninga
sem gerðir voru á fyrra ári.
Mér þykir því rétt að gera stuttlega
grein fyrir söltun og sölu, sem talin er
tilheyra árinu 1961, en sem af framan-
gi'eindum ástæðum var ekki unnt að skýra
frá í yfirlitsskýrslum um saltsíldina fyrir
árið 1961.
Heildarsöltunin 1961/62 varð 109.835
tunnur, þar af 16.849 flökuð og flött síld.
Á eftirtöldum 3 stöðum var mest saltað
°g svo sem hér segir:
Akranes ............... 30.837 tn.
Keflavík .............. 26.446 —
Reykjavík ............. 22.287 —
Eftirtaldar 4 söltunarstöðvar höfðu
toesta söltun:
H. Böðvarsson & Co., Akranesi .. 14.553 tn.
Baejarútgerð Reykjavíkur, Rvík . 8.604 —
Hallbjarnarson, Akranesi ... 6.311 —
Isbjörninn h.f., Reykjavík.. 5.728 —
Heildarútflutningur nam 102.342 tunn-
Rtti að verðmæti fob. kr. 89.280 þús.
Af útflutningsmagninu voru 11.270 tn.
Hökuð og flött síld. 90.069 tunnur voru
seldar til „clearings" eða jafnvirðiskaupa-
’anda en 12.273 til fríverzlunarlanda.
Suður- og SuSvesturlandssíldin 1962:
Eins og kunnugt er voru deilur s.l. haust
um kaup og kjör á síldveiðum. Veiðar hóf-
ust því ekki fyrr en um miðjan nóv. Samn-
ln£ar höfðu tekizt um allverulegt magn
td ýmissa landa, svo sem vikið verður að
síðar. Vegna stöðvunar veiðanna var ekki
unnt að salta og afgreiða upp í samninga
ems og til stóð, en þó rættist betur úr
þessu en við mátti búast. Síldveiðin hefur
gengið með afbrigðum vel eins og kunn-
ugt er.
Þegar þetta er ritað hafa alls verið salt-
aðar 124.296 tn., þar af flökuð síld og
flött 18.322 tn.
3 hæstu söltunarstaðirnir eru:
Akranes ................... 33.924
Reykjavík ................. 32.821
Keflavík .................. 22.527
og 4 hæstu söltunarstöðvarnar:
Har. Böðvarsson & Co., Akranesi 16.877
Bæjarútgerð Reykjavíkur .... 11.152
ísbjörninn h.f., Reykjavík.. 7.575
S. Hallbjarnarson h.f., Akranesi 7.013
Samningar um Suðurlandssíld hafa ver-
ið gerðir sem hér segir:
Pólland 30.000 tn. Cutsíld
A.-Þýzkaland 30.000 — —
Rúmenía 25.000 — Rundsíld
V.-Þýzkaland 6.000 — Cutsíld
Sami 25.000 — Sérv. flött síld eða alls — 31.000 tn.
U.S.A. 3.500 — Cutsíld
Sami 8.000 — Sérv. flökuð síld eða alls — 11.500 tn.
Danmörk 2.050 — Cutsíld
Sami 200 — Kryddsíld eða alls 2.250 tn.
Svíþjóð 3.900 — Cutsíld
Sami 500 — Kryddsíld eða alls 4.400 tn.
ísrael 4.000 — Sykursíld
Benelux-löndm 6.000 — Rundsíld
Frakkland 5.000 — do.
Samtals 149.150 tn.
Samningar hafa enn ekki tekizt um sölu
á Suðurlandssíld til Sovétríkjanna þegar
þetta er ritað.
Af framanrituðu er auðséð að enn vant-
ar ríflega 25.000 tunnur til að uppfylla
gerða samninga.
Þar sem söltun hófst svo seint var sára-
lítið flutt út fyrir áramót eða aðeins
11.014 tn. 1 janúarmánuði 1963 mun þó
verða flutt út allverulegt magn af Suður-
landssíld. Greinargerð fyrir útflutningi
og útflutningsverðmæti Suðurlandssíldar
1962/63 verður því að bíða næstu yfirlits-
skýrslu Síldarútvegsnefndar.