Ægir - 01.09.1965, Síða 13
Æ GIR
251
Reglugerð um porsk- ogýsuveiðar tneð nót
1. gr.
Gerð þorsk- og ýsunóta, sem notaðar eru til
veiða innan endimarka landgrunns íslands, skal
vera þannig, að poki nótar, sem er 220 faðmar
eða lengri, skal ekki vera lengi'i en 30 faðmar á
teini. Poki styttri nóta skal vera minni hlut-
fallslega.
2. gr.
Möskvastærð þorsk- og ýsunóta skal minnst
vera 110 mm, þegar möskvinn er mældur í votu
neti, teygður horna á milli, eftir lengd netsins.
Komist flöt mælistika, 110 mm breið og 2 mm
þykk, auðveldlega í gegn, þegar netið er vott.
Poki nótarinnar er ekki háður möskvastærðar-
takmörkuninni.
3. gr.
Ráðuneytið getur heimilað þeim aðilum, sem
þegar eiga smáriðnari þorsk- og ýsunætur en í
fyrirmælum þessum greinir, að nota þær nætur
5 næstu tvö ár eftir útgáfudag reglugerðar þess-
arar. Þó skal ávallt, er skipt er um nótabálk,
set.ja bálk með 110 mm lágmarksstærð möskva
í stað þess, er tekinn er í burtu.
Umsóknir um notkun þessara nóta skulu sendar
ráðuneytinu innan eins mánaðar frá birtingu
reglugerðar þessarar og skal umsókninni fylgja
sönnun á, hvenær nótin var keypt og flutt til
landsins.
4. gr.
Á vetrarvertíð 1965 er óheimilt að kasta nót
til veiða á þorski eða ýsu á tímabilinu frá því
1 klst eftir sólarlag þar til 1 klst fyrir sólar-
upprás.
5. gi'.
Þorskanet skulu lögð í eina stefnu á sama
veiðisvæði, eftir því sem við verður komið.
6. gr.
Þegar gert er að fiski um borð í veiðiskipi,
sem stundar veiðar með nót eða þorskanetjum,
er bannað að kasta slógi útbyrðis á veiðisvæðinu.
7. gr.
Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða
sektum.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í
1- gr. laga nr. 44 5. apríl 1948, um vísindalega
Verndun fiskimiða landgrunnsins, til að öðlast
gildi þegar í stað og birtist til eftirbreytni öll-
um, sem hlut eiga að máli.
Jafnframt er úr gildi felld fyi'irmæli um gerð
þorsk- og ýsunóta frá 5. febrúar 1965.
Sjávarútvegsmálaráðuneytið, 27. marz 1965
Emil Jónsson.
Aó kaupa þaó bezta
= SPARNAÐUR!
Margföld reynzla hefur sannað endingar-
gæði RUST-OLEUM, sem á sér enga hlið-
stæðu. 40 ára leiðandi notkun í Bandaríkj-
unum sanna gæðin.
RUST-OLEUM inniheldur sérstakar efna-
blöndur úr fiskiolíum og smýgur i gegnum
ryðið alla leið að hinum óskemmda málmi.
RUST- OLEUM sparar bæði vinnu og efnis
kostnað með hinu mikla endingarþoli sínu.
íétqerósrmm! hrtiðfa3íez,td-
Hota mr-ejtemt
RUST-OLEUM
E. TH. MATHIESEN h.f.
LAUGAVEG 178 - SÍMI 36570
Gunnlagnr E. Briem