Ægir - 15.10.1966, Síða 4
306
ÆGIR
veiðum um miðjan mánuð og var reitings
afli þegar hætt var. Afli dragnótabáta hef-
ur farið minnkandi, þó fengu einstakir bát-
ar sæmilega veiði, allt að 7 lestum. Aflinn
hjá togbátum var yfirleitt lélegur. Aðal-
uppistaða aflans var karfi. Handfærabátar
hafa sótt afla sinn suður og austur með
landi. Veiði hjá þeim var yfirleitt sæmileg
og stundum ágæt. Aðaluppistaða aflans
var stór ufsi. Gæftir voru slæmar.
Akranes: Þaðan stunduðu 13 bátarveið-
ar, þar af 9 á síldveiðum, 3 með línu og 1
með handfæri. Aflinn varð alls (síldveiði
ekki meðtalin) 133 lestir í 30 sjóferðum,
þar af afli línubáta 90 lestir í 25 sjóferð-
um. Auk þessa fengu 3 opnir vélbátar 23
lestir í 15 sjóferðum í dragnót. Gæftir
voru stirðar.
Rif: Þaðan stunduðu 4 bátar veiðar, þar
af 2 á síldveiðum og 2 með línu. Afli línu-
bátanna varð 65 lestir í 15 sjóferðum.
Gæftir voru stopular.
Ólafsvík: Þaðan stunduðu 15 bátar veið-
ar, þar af 6 á síldveiðum, 7 á dragnót og 2
með humartroll. Aflinn varð alls (síld-
veiði ekki meðtalin) 364 lestir í ca. 108 sjó-
ferðum. Aflahæsti bátur á tímabilinu varð
Geysir með 62 lestir. Gæftir voru frekar
stopular.
Sfykkishólmur: Þaðan stunduðu 2 bátar
veiðar í mánuðinum með línu og varð afl-
inn 4 lestir í 2 sjóferðum. Einnig stunduðu
nokkrir minni bátar veiðar með haukalóð
og var aflinn lítill sem enginn. Gæftir voru
frekar stirðar.
AUSTFIRÐINGAFJÓRÐUNGUR
í semfember
Utgerð í mánuðinum var svipuð og í síð-
asta mánuði. Síldveiðarnar gengu yfirleitt
vel og var veiðin nær landi en áður eða frá
30—70 mílum undan landi, aðallega í Reyð-
arfjarðardjúpi og norður í Seyðisfjarðar-
djúp. Mikið var saltað af síld í mánuðin-
um, svo að um mánaðamótin var að mestu
búið að salta upp í samninga. Smábátar
réru lítið í mánuðinum, en fiskuðu fremur
vel. Gæftir voru stirðar.
Hornafjörður: Þaðan voru eins og fyrr
fjórir stórir bátar á síldveiðum. Einu
stundaði botnvörpuveiðar og sigldi oftast
með aflann. Fjórir minni bátar stunduðu
humarveiðar. Gæftir voru slæmar. Afl1
lagður á land í mánuðinum var 69 tonn,
þar af voru 16 tonn af slitnum humar.
Djúpivogur: Þaðan var „Sunnutindur
gerður út til síldveiða. Síldarverksmiðjau
hefir alls tekið á móti um 6700 tonnum af
síld og saltað hefir verið í um 8000 tunnuv.
Breiðdalsvík: Þaðan var „Sigurður Jons-
son“ á síldveiðum. Síldarverksmiðjan vai
búin að taka á móti rúmlega 4000 tonnum
af síld og saltað hafði verið í um 5000
tunnur og 110 tonn af síld höfðu verið
frystar.
Stöðvarfjörður: Þaðan var „Heimir“ H
síldveiðum. Síldarverksmiðjan var alls bU'
in að taka á móti um 5000 tonnum af sn
og saltað hafði verið í um 9600 tunnur °£
fryst höfðu verið 200 tonn af síld. Hand-
færabátar frá Reykjavík hafa lagt á lun
nokkuð af stórufsa.
Fáskrúðsfjörður: Þaðan voru tveU
stóru bátarnir á síldveiðum. SmábátarnU
réru sama og ekkert í mánuðinum. Síldal'
verksmiðjan var búin að taka á móti um
18.000 tonnum af síld og búið var að sal a
í um 43.000 tunnur og fryst höfðu vei1
270 tonn af síld. Handfærabátar frá Su
vesturlandi lögðu upp 205 lestir af sto1
ufsa í mánuðinum.
Reyðarfjörður: Þaðan voru tveir sto1
bátarnir á síldveiðum. Einn lítill þilA11®
bátur réri dálítið og fiskaði fremur
Einnig réri einn opinn vélbátur nokkuð» e
fiskaði lítið. Síldarverksmiðjan var búin
taka á móti um 20.000 tonnum af síld ^
síldarsöltunarstöðvarnar fjórar voru b
ar að salta samtals í 23535 tunnur.
Eskifjörður: Þaðan voru eins og a ^
sex stórir bátar á síldveiðum. Einn n 1
þilfarsbátur réri nokkuð í mánuðinum
fiskaði fremur vel, oftast allt að tveim ^
lestum í róðri. Síldarverksmiðjurnar v01
alls búnar að taka á móti 38,845 tonnum^
síld. Á síldarsöltunarstöðvunum fimm