Ægir - 01.11.1966, Qupperneq 3
Æ G I R
RIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS
59. árg. Reykjavík 1. nóv. 1966 Nr. 19
íítgerð og aflabrögð
VESTFIRÐIN GAF J ÓRÐUN GUR
í september
í september voru veiðar lítt stundaðar
víðast og aflafengurinn í heild óverulegur.
Er heildaraflinn í fjórðungnum um 1000
lestir, og er það rýrasti aflamánuður um
langt árabil. Færabátarnir voru yfirleitt
hættir veiðum og stopulir róðrar hjá mörg-
um dragnótabátunum. Smokkfiskveiði var
uokkur í mánuðinum á Arnarfirði og í
Isafjarðardjúpi. Mun láta nærri að fryst-
ar hafi verið um 300 lestir af smokk til
beitu.
Aflinn í einstökum verstöðvum:
Patreksfjörður: Heildaraflinn í mánuð-
inum var 183 lestir, og er hann að mestu
fenginn í dragnót. Stunduðu 7 dragnóta-
bátar veiðar fram eftir mánuðinum, og var
Skúli Hjartarson aflahæstur með 51 lest
í 18 róðrum. Sæborg byrjaði róðra með
bnu um miðjan mánuðinn og var búin að
fá 39 lestir í 10 róðrum. Dofri var aðeins
búinn að fara einn róður.
Tálknafjörður: Tveir dragnótabátar
lönduðu 47 lestum í mánuðinum.
Bíldudalur: Dragnótabátarnir hættu all-
ir veiðum um miðjan mánuðinn. Var afli
þeirra því aðeins 35 lestir. Andri var byrj-
aður róðra með línu, og var búinn að fá
26 lestir í 9 róðrum.
Þingeyri: Færabátarnir voru allir hætt-
ir þorskveiðum og komnir á smokkveiðar.
Flateyri: Færabátarnir voru allir hætt-
ir. Þorsteinn var á dragnótaveiðum og
landaði 39 lestum úr 10 róðrum og Bragi
var byrjaður róðra með línu, en afli var
sáratregur, 15 lestir í 7 róðrum.
Suðureyri: 10 bátar réru með línu frá
Suðureyri í mánuðinum, og var afli ein-
staklega rýr allan tímann. Voru afla-
hæstu bátarnir með um 2 lestir í róðri til
jafnaðar. Heildaraflinn í mánuðinum var
aðeins 105 lestir. Var Gyllir aflahæstur
með 22 lestir í 9 róðrum.
Bolungavík: 13 bátar stunduðu veiðar
frá Bolungavík, ýmist með línu, handfæri
eða dragnót, og var heildarafli í mánuð-
inum 149 lestir. Aflahæst var Sædís með
59 lestir í dragnót. Af línubátunum þrem
var Guðrún aflahæst með 24 lestir í 12
róðrum.
Hnífsdalur: Þar bárust á land 74 lestir
af 3 bátum. Pólstjarnan réri með línu í
mánuðinum og aflaði 54 lestir.
Isafjörður: Nokkrir minni bátar stund-
uðu róðra með línu, en stærri bátarnir
voru engir byrjaðir. Ver landaði 54 lestum
úr 16 róðrum og Jódís 43 lestum úr 14
róðrum. Gylfi var á dragnótaveiðum, og
nam afli hans í mánuðinum 87 lestum.
Dynjandi var á netaveiðum og fékk 23
lestir í 14 róðrum. Heildaraflinn í mánuð-
inum var 238 lestir. Þegar kom fram í
mánuðinn hættu allir minni bátarnir veið-
um og voru farnir að útbúa sig á rækju-
veiðar.