Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1966, Síða 8

Ægir - 01.11.1966, Síða 8
322 Æ G I R Ólafur Thors, form. Halldór Kr. Þorsteinsson, F.Í.B. 1918—1935. heiðursf élagi í F.l.B. Þórarinn Olgeirsson, heiðursfélagi í F.l.B. lega þjónustu í té í Bretlandi um langan aldur. Næsti togari, sem íslendingar keyptu frá Englandi árið 1907, var b.v. „Marz,“ eign Islandsfélagsins h.f. Aðalforgöngu- menn þess félags voru Jes Zimsen, kaup- maður, og Hjalti Jónsson, skipstjóri, og var Hjalti fyrsti skipstjóri togarans. Hjalti var afburða sjómaður og aflamaður. 1 kjölfar þessara nýju togara komu mörg ný skip, og stuðlaði hinn nýi hluta- fjárbanki, íslandsbanki, mjög að eflingu togaraútgerðarinnar, en bankinn hafði haf- ið starfsemi 1904. Með togaraútgerðinni var véltækni nútímans fyrst tekin í þjón- Kjartan Thors, form. F.Í.B. frá 1935—1959. ustu íslenzkra atvinnuvega svo nokkuð kvæði að. Árið 1915 voru gerðir út frá Reykjavík 17 togarar. Togaraútgerðin kallaði á nýjai' framkvæmdir og þjónustu, jók hún at- vinnu og verzlun, einkum í aðalútgerðar- bæjunum Reykjavík og Hafnarfirði. Ei' hiklaust óhætt að þakka þessari nýju út- gerð, að ráðizt var í hafnargerðina í Rvík á árunum 1913 til 1916. En hin mikla hafnargerð í Reykjavík hefur orðið lyfti- stöng fyrir Reykjavíkurborg og landið i heild. Togaraútgerðin varð fyrir miklu áfalh 1917, þegar bandamenn kröfðust þess að 10 togarar yrðu seldir Frökkum, til varnai’ gegn kafbátahættunni, sem þá var í al- gleymingi. 1 stríðslok 1918 voru aðeins 9 togarar í eigu íslendinga. Árin 1920 til 1922 var mikið verðfall á saltfiski og ís' fiskmarkaðurinn í Englandi var óhagstæð- ur. Urðu þá togararnir fyrir miklum töp- um, en hagur þeirra snerist mjög til ÞesS betra 1924, þegar fundust ný, auðug fiski- mið, „Halamiðin," og verð á saltfiski vai jafnframt mjög hagstætt. Klemens Jónsson segir í Reykjavíkur- sögu sinni, sem kom út árið 1929, um tog- araútgerðina: „Það er þessari útgerð, sem

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.