Ægir - 15.06.1967, Blaðsíða 3
Æ G I R
_____________RIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS
60, árg. Reykjavík 15. júní 1967 Nr. 11
Clgerð og afilabrögð
VESTFIRÐINGAFJÓRÐUNGUR
í maí 1967. VertíSarlok.
Vegna algjörs aflaleysis höfðu margir
netabátar dregið upp net sín fyrir mán-
aðamótin, en hinir drógu upp fyrstu daga
Riánaðarins. Aftur á móti hélzt ágætur
afli hjá línubátunum fram yfir miðjan
®ánuðinn, og fengu þeir margir á annað
hundrað lestir í mánuðinum. Var aflinn
að sjálfsögðu eingöngu steinbítur. Afla-
hæst var Sif frá Súgandafirði með 157,2
lestir í 14 róðrum.
Heildaraflinn á Vestfjörðum í maí varð
aú 2.875 lestir, en var 1.857 lestir í fyrra.
^arð heildaraflinn í fjórðungnum frá ára-
wótum til vertíðarloka nú 27.221 lest,
en var í fyrra 30.722 lestir. Er það fyrst
°g fremst aflabresturinn hjá netabátun-
nrn> sem veldur samdrættinum í aflanum.
Fefir aflabresturinn komið harðast niður
a Þingeyri, þar sem allir vertíðarbátarnir
reru með net.
Aflahæsti báturinn á vertíðinni var
Helga Guðmundsdóttir frá Patreksfirði
ureð 1123 lestir í 54 róðrum, en í fyrra
var Framnes frá Þingeyri aflahæst með
1148 lestir í 45 róðrum. Af bátum, sem
réru með línu alla vertíðina, var Sif frá
Súgandafirði aflahæst með 775 lestir í 77
] °ðrum. Sami bátur var einnig aflahæstur
1 l'yrra með 728 lestir í 70 róðrum.
A þessari vetrarvertíð voru gerðir út
5 bátar til þorskveiða, og reru 22 þeirra
lneð línu alla vertíðina, en hinir reru með
net lengri eða skemmri tíma. Árið áður
var gerður út 51 bátur, og reru þá 19 með
línu alla vertíðina.
I vertíðarlokin fóru tveir bátar, Þrymur
frá Patreksfirði og Jörundur III frá
Tálknafirði, til veiða rneð net við Vestur-
Grænland, en varð lítið ágengt. Síðar í
mánuðinum fór Þrymur með línu til Vest-
ur-Grænlands og gerði ágætan túr, þrátt
fyrir mikið ísrek, sem hamlaði mjög veið-
um. Landaði Þrymur 60 lestum af slægð-
um fiski, og hélt aftur á sömu slóðir, ásamt
Þorra frá Patreksfirði. Voru báðir bát-
arnir á heimleið með fullfermi af slægðum
fiski um mánaðamótin.
Handfærabátar voru lítillega byrjaðir
veiðar í maí, aðallega í Bolungavík, og
verið var að búa dragnótabáta til veiða.
Heildarafli vertíðarbátanna var sem hér
segir:
Patreksfjörður: Lestir Róðrar
Helga Guðmundsdóttir .... 1123,2 54
Jón Þórðarson ............. 1096,8 69
Þrymur ..................... 761,7 40
Þorri ...................... 748,4 38
Heiðrún .................... 426,9 29
Dofri ...................... 332,3 36
Svanur 1.................... 180,5 12
T álknafj örður:
Jörundur III................ 751,1 44
Brimnes 1................... 625,9 65
Sæfari ..................... 496,0 52
Freyja ..................... 160,0 20