Ægir

Årgang

Ægir - 15.06.1967, Side 14

Ægir - 15.06.1967, Side 14
212 Æ GIR HORFT FRAM TIL ALDAMÓTANNA Á s.l. sumri var haldinn fundur um mat- vælamál í Hamborg, þar sem fjallað var um þróun fiskveiða og framtíðarhorfur fram til næstu aldamóta. Voru þar haldnir nokkrir fyrirlestrar, sem fjölluðu m.a. um þróun fiskveiða á ýmsum hafsvæðum, en í miðdepli umræðnanna stóðu einkum eftir- talin fjögur atriði: 1. Hver verður þróun aflamagns fisk- veiða heimsins á næstu áratugum? 2. Á hvaða hafsvæðum munu fiskveiðar einkum verða stundaðar? 3. Er líklegt, að fiskveiðar muni í fram- tíðinni beinast meira í þá átt, að tekin verði upp fóðrun dýra í fersku og söltu vatni? 4. Mun verða mögulegt í framtíðinni, að nýta allan afla fiskveiða í heiminum til manneldis, eða er líklegt, að hluti hans verði, eins og hingað til, nýttur til mjöl- og lýsisvinnslu ? Eftirfarandi yfirlit sýnir þróun heildar- sjávarafla í heiminum allt frá miðri nítj- ándu öld og fram til ársins 1965, í millj. lestum. Ár Millj. lestir Ár Millj. lestir 1850 1,5—2 1953 25 1900—1910 4 1955 28 1924 10 1957 31 1932 10 1959 35 1934 14 1960 38 1936 17 1961 42 1938 21 1962 45 1947 18 1963 46 1948 19 1964 52 1965 55 Heildarframleiðslugeta allra heimshaf- anna er talin vera 2 milljarðar lesta og eru þá meðtalin skeldýr. Hæfileg nýting þessa heildarmagns var talin liggja á bil- inu 100 til 250 millj. lesta. Yfirleitt voru menn þeirrar skoðunar, að neðri talan væri nær sanni og mundi heildaraflinn takmarkast af tæknilegum og viðskipta- legum aðstæðum. Dr. Meseck, fiskimála- stjóri Þýzkalands, sem hélt aðalframsögu- erindi fundarins, taldi, að árið 1980 mundi heimsaflinn geta numið 75 millj. lestum, og mundu þaraf 66 millj. lestir koma úr hafinu, en 9 millj. lestir úr ám og vötnum. Dr. Meseck benti á það hversu spár um • aflamagn og annað það, er að fiskveiðum lýtur, væru hæpnar og yrðu að gerast með mikilli varúð. Þar yrði að taka ýmislegt með í reikninginn eins og t.d. hin náttúr- legu takmörk framleiðslugetu einstakra hafsvæða, hina miklu áhættu, sem fylgir fiskveiðunum og hversu náttúrubundnar fiskveiðar eru yfirleitt. Einnig kæmi hér til, að fiskurinn skemmist auðveldlega eft- ir að hann hefir verið veiddur, sem hefir áhrif á möguleikana til að dreifa honum sem matvælum. Þarf því að gera sérstakar ráðstafanir til að hindra slíkar skemmdir. Á fundinum var rætt um einstök haf- svæði og framleiðslugetu þeirra. Kom í ljós, að sum hafsvæði hafa þegar verið hagnýtt að því marki, sem talið verður hæfilegt. Eitt þessara svæða er Norð- austur-Atlantshafið, þ.e. hafsvæðin um- hverfis A.-Grænland, Island, Svalbarða, Noregsströnd, Barentshaf, Norðursjó, Eystrasalt, hafið umhverfis írland og við strendur Frakklands, Norðvestur-Spán og Portúgal. Á seinni árum hefir verið unnt að halda heildaraflamagninu á þessu svæði öllu í um 8 millj. lesta með því að hafa verið meginhluti aflans, sem veiði- tæki, svo sem togveiðarfæri og hringnót. Það atriði var hinsvegar ekki rætt hvort unnt mundi að bæta upp minnkandi afla- magn þeirra fisktegunda, sem hingað til hafa verið megin hluti aflans, með veiði annarra fisktegunda, sem hingað til hafa verið lítið veiddar. Dr. A. Meyer, forstjóri í fiskirann- sóknastofnuninni í Hamborg taldi, að þróun veðurfars á N.-Atlantshafi mundi hafa úrslitaþýðingu fyrir aflamöguleika á svæðinu, eða eins og hann orðaði það:

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.