Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 15.06.1967, Qupperneq 11

Ægir - 15.06.1967, Qupperneq 11
ÆGIR 209 ery, the Institute will take up intensive behaviour research especially on herring and cod. 5) Collection of information on fishing gear. Recently it is very difficult to get in- formation about Icelandic fishing gears in use. A publication on this matter is now being planned. Besides these impoi-tant items the gear research will deal with the following: Se- lection (fish trawls, shrimp trawl, Danish seine), experiments with artificial bait, small traps etc. Evaluation of development in foreign fisheries and adaptation of new fishery techniques is also of importance. Frá Verðlagsráði sjávarútvegsins ------------------------------------------» Síldarverð sunnan- og vestanlands Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins hefur ákveðið, að lágmarksverð á síld í bræðslu veiddri við Suður- og Vesturland, þ. e. frá Hornafirði vestur um að Rit, skuli vera frá og með 1. júní til og með 15. júní 1967. Hvert kg ................kr. 0.60 Verðið er miðað við að seliandi skili síldinni á flutningstæki við hlið veiðiskips. Seliandi skal skila síld til bræðslu í verk- smiðjuþró og greiði kaupandi kr. 0.05 pr. kg í flutningsgjald frá skipshlið. Reykjavík, 1. júní 1967. ^ Verðlaasráð sjávarútvegsins. Sildarverð norðan- og austanlands Verðlagsráð sjávarútvegsins og yfirnefnd þess hafa ákveðið eftirfarandi lágmarksverð á síld í bræðslu veiddri við Norður- og Austurland, þ. e. frá Rit norður um að Hornafirði, frá og með 1. júní til og með 31. júlí 1967. Hvert kg....................kr. 1.21 Verðið er miðað við, að síldin sé komin í lönd- unartæki verksmiðjanna, eða umhleðslutæki sér- stakra síldarflutningaskipa, er flytji síldina til fjarliggjandi innlendra verksmiðja. Heimilt er að greiða kr. 0.22 lægra verð á kg fyrir síld, sem tekin er úr veiðiskipi í flutninga- skip utan hafna. Sé síldin ekki vegin, gilda eftir- farandi reglur: a) Að því er snertir afhendingu síldar í síldar- flutningaskipið Síldina, þá skal vera vigtað frá mælitækjum skipsins úr nægfilega mörgum sturtum til þess að ganga úr skugga um hver meðalvigtin er á hverjum hektólítra síldar og skal vigt hektolítrans vera reiknuð yfir í kíló og verð síldarinnar greitt eftir því, sem Verðlagsráð ákveður verð hennar per kíló á hverju verðlagstímabili fyrir bræðslusíld í flutningaskip. b) Hvað snertir afhendingu í síldarflutninga- skip S. R. Haförninn, þá mælist síldin í tönk- um skipsins, í hektolítrum eftir hinum stað- festu töflum um rúmmál einstakra geyma þess, en til þess að finna hlutfallið á milli rúmmáls og vigtar, skal vigtað úr einum tanka skipsins. Skal kílóatalið sem þannig fæst úr hektolítra lagt til grundvallar fyrir mótteknu magni, sem greiðist eftir kílóa- fjölda með því verði, sem ákveðið hefur verið fyrir bræðslusíld í flutningaskip á því tíma- bili, sem lestun fer fram. c) Verði um önnur flutningaskip að ræða, skal önnur hvor framangreind regla gilda eftir því sem við á. Athuganir þessar skulu gerðar af löggildingar- stofu voga og mælitækja við fyrstu ferð hvers skips á sumarsíldarvertíð, síðan við fyrstu ferð í ágúst og við fyrstu ferð í október. Reykjavík, 31. maí 1967. Verðlaasráð sjávarútvegsins. Allir sjómenn, eldri og yngri, þurfa a5 eignast bókina ENSK LESTRARBÖK handa sjómönnum Þar er að finna ensk heiti ó öllum hlutum ó skipi og í dokk. Auk þess er bókin góður leiðarvísir fyrir siómenn í erlendum höfnum. — Kostar 40 kr. í sterku bandi. Bókaverzlun ísafoldar.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.