Ægir - 15.11.1970, Qupperneq 3
Æ G I R
RIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS
63. árg. Reykjavík 15. nóvember 1970 Nr 20
(ítgerð og allabrögd
SUÐUR- OG SUÐVESTURLAND
í október 1970.
Homafjörður: Þaðan stunduðu 5 bátar
veiðar með botnvörpu og var afli þeirra
alls 138 lestir í 25 sjóferðum. Auk þess
var afli aðkomubáta 7 lestir. Gæftir voru
stirðar. Hæsti bátur á þessu tímabili var
Gissur hvíti með 58 lestir í 7 sjóf. Heild-
araflinn í Hornafirði frá 1. jan.—31. okt.
var alls 8.368 lestir. þar af sl. humar 173
lestir.
Vestmannaeyjar: Þaðan stunduðu 34
bátar veiðar, þar af 33 með botnvörpu og
1 með línu. Afli þeirra var alls 1.319 lest-
ir í 186 sjóferðum. Auk þessa var afli að-
komubáta og smábáta 93 lestir. Gæftir
voru sæmilegar. Hæstu bátar á tímabilinu
voru:
Lestir Sjóf.
1. Gullborg (botnvarpa) .... 109 8
2. Elliðaey (botnvarpa) .... 106 8
3. Leó (botnvarpa) .............. 100 7
Heildaraflinn í Vestmannaeyjum frá
1. jan.—31. okt. var alls 55.474 lestir, þar
af sl. humar 116 lestir.
Stokkseyri: Þaðan stunduðu 6 bátar
veiðar, þar af 5 með botnvörpu og 1 með
línu. Afli þeirra var alls 48 lestir í 31 sjó-
ferð. Gæftir voru stirðar. Hæsti bátur á
tímabilinu var Hásteinn með 18 lestir í 9
sjóferðum. Heildaraflinn á Stokkseyri frá
1. jan til 31. okt. var alls 4.344 lestir, þar
af sl. humar 33 lestir. (Af þessum afla var
1.687 lestum landað í Þorlákshöfn og er
innifalið í heildaraflanum þar).
Eyrarbakki: Þaðan stunduðu 3 bátar
veiðar með botnvörpu og var afli þeirra
alls 11 lestir í 10 sjóferðum. Gæftir voru
slæmar. Heildaraflinn á Eyrarbakka frá
1. jan. til 31. okt. var alls 3.246 lestir, þar
af sl. humar 16 lestir. (Af þessum afla
var 487 lestum landað í Þorlákshöfn, og er
innifalið í heildaraflanum þar)
Þorlákshöfn: Þaðan stunduðu 13 bátar
veiðar, þar af 10 með botnvörpu og 3 með
línu. Afli þeirra var alls 276 lestir í 102
sjóferðum. Gæftir voru slæmar. Heildar-
aflinn í Þorlákshöfn frá 1. jan. til 31. okt.
var alls 21.657 lestir. þar af 1.251 lest af
spærlingi og 177 lestir sl. humar.
Grindavík: Þaðan stunduðu 35 bátar
veiðar og var afli þeirra sem hér segir:
Lestir Sjóf.
16 bátar með botnvörpu .... 244 78
12 — — línu ................. 165 50
3 — — handfæri .... 23 18
1 — — net ................... 34 5
3 — (litlir) m. línu .... 11 12
35 bátar alls með .......... 477 163
Gæftir voru stirðar. Heildaraflinn í
Grindavík frá 1. jan. til 31. okt. var alls
45.539 lestir.
Sandgerði: Þaðan stunduðu 10 bátar
veiðar, bar af 1 með rækjutroll, aðrir með
línu og botnvörpu. Aflinn var alls 199