Ægir

Årgang

Ægir - 15.11.1970, Side 16

Ægir - 15.11.1970, Side 16
338 ÆGIR 5. mynd), en mjög örðugt er að aldurs- greina mjög gamlar skeljar og því óhægt um vik að segja til um hámarksaldur þeirra. Aldursákvarðanir og vaxtarmælingar hafa sýnt mismunandi vaxtarhraða eftir svæðum. Þannig er t. d. að jafnaði hægari vöxtur meðal hörpudisks úr Breiðafirði heldur en úr Jökulfjörðum og er því stærð hörpudisks nokkruð breytileg eftir svæð- um. Þar sem athuganir á hörpudiski hafa verið gerðar eru t. d. að jafnaði smæstar skeljar í Hvalfirði, meðalstórar í Breiða- firði, en stærstar hafa þær aftur á móti fengizt í Jökulfjörðum og í Reykjarfirði á Ströndum. Virðist því samliengi vera nokkurt milli skelstærðar og sjávarhita og eykst stærðin eftir því sem norðar dregur og sjávarhiti minnkar, enda er hörpudisk- urinn kaldsjávartegund. Sjávarhiti er þó greinilega ekki það eina, er máli skiptir í sambandi við stærðina, t. d. fást yfirleitt stærstu skeljarnar á mjög hörðum botni og grynnst á hverju veiðisvæði, en fara smækkandi, ef farið er dýpra. Um útbreiðslu hörpudisks er það að segja, að hann er kaldsjávartegund, er fundizt hefur víða í Norðurhöfum, í Norð- ur-Atlantshafi suður til Cape Cod og Stav- anger og í Kyrrahafi suður til Kóreu, Norður-Japan og Vancouver. Hér við land hefur hörpudisks víða orðið vart, einkum við Vestur-, Norður- og Austurland, enda þótt fæstir hefðu gert sér í hugarlund, hvílík mergð getur verið af honum, áður en nánari athuganir og leit leiddu það í ljós. Þegar þetta er ritað hafa fundizt hörpudiskamið allvíða við norðvestan og vestanvert landið, þ. e. í Jökulf jörðum, Isa- fjarðardjúpi, Dýrafirði, Arnarfirði, Breiðafirði eins og áður greinir, smásvæði í Hvalfirði og loks í Húnaflóa, og mun þeirri leit gerð nánari skil í ,,Ægi“ síðar. Er því ástæða til að ætla, að fleiri mið eigi eftir að finnast við Vestur-, Norður- og 4. mynd: Stærðardreifing (mm hæð) hörpudisks á nokkrum tilteknum svæðum (sjá einnig 1. töflu).

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.