Ægir

Årgang

Ægir - 01.02.1973, Side 10

Ægir - 01.02.1973, Side 10
Mynd 5. Hreinsi- og afvindun- arkerfi (3—6 á mynd 1 og 2). með þetta kerfi, og sem reru með sömu línu- lengd á sömu mið. Þess ber þó að geta að á þeim bátum eru 3 á sjó og 3 í landi við beitn- ingu. Yfir sumartímann eru 4 um borð, en þá eru þeir nokkra daga úti í einu og draga inn á stokka. Notagildi. Um notagildi kerfisins er það að segja að það mun ugglaust létta mörg handtök og jafn- framt spara mannskap. Það er víða hér á landi orðið erfitt að fá beitningamenn og hefur það staðið línuútgerð fyrir þrifum. Ég leyfi mér að halda því fram, að hér sé einkum á ferðinni kerfi fyrir minni báta og á að vera auðvelt að koma kerfinu fyrir í bátum allt niður í 15-20 rúmlestir og jafnvel minni, ef gangbreidd milli stýrishúss og síðu er nægi- leg. Segja má að það sem taki mesta plássið séu stamparnir og þar sem aðeins er hægt að hafa 220 króka í stamp í stað 4-500 með gömlu aðferðinni, verða stampar um tvisvar sinnum fleiri og þar af leiðandi fleiri handtök við stampana, en ekki verður það neitt vandamál að koma tilskildum stampafjölda fyrir. Á minni bátum, sem eru í dagróðrum og róa með ca. 10000 króka, eða 25 400 króka bjóð, er algengt að 3 menn séu á sjó og 3 í landi. Með vélinni væri að mínu áliti hægt að hafa 1 y2 mann í landi í stað þriggja, en sama mannskap á sjó og er þá reiknað með að ekki sé dregið inn á stokka og landmenn skili ákveðnum vinnudegi. Ef vinna landmanna er borin sam- an í þessum tveimur tilvikum, kemur út úr því dæmi, að 1 maður stokki upp sömu línu- lengd og tveir menn geta beitt. í þessum samanburði er gert ráð fyrir að beitningar- mennirnir þurfi að taka beitu úr frysti, skilja hana að og skera. Þeir þurfa einnig að hreinsa beituafganga og annað af krókum, en þess þyrfti þó ekki, ef t. d. burstum væri komið fyrir innan við línurúllu. Einnig þurfa þeir að vinda tauma af ásnum, sem uppstokkun- armaðurinn þarf ekki. Sama vinnan er að sjálfsögðu við ábótina. Ef gerður er saman- burður á vinnu um borð með línuvélakerfinu annars vegar og hefðbundnu aðferðinni hins vegar, þá verður vinnan um borð heldur meiri þar sem gert er ráð fyrir að mannskap- urinn um borð sjái um að skilja beituna úr pökkunum og kljúfa hana og mætti hugsan- lega gera það meðan stímað er á miðin, eða áður en haldið er úr höfn. Vinnan við að flytja stampa og tengja saman bjóð verður einnig meiri eins og áður var minnzt á, en þetta verða að teljast smáatriði. Tíminn við að leggja línuna verður lengri, þar sem lagningarhraðinn er minni með beitningarvél þessari heldur en þegar lagt er úr stamp. Það þýðir þó ekki að drætti þyrfti endilega að seinka sem nemur þeim tímamis- mun, t. d. ef byrjað er á þeim enda, sem fyrst var lagður eftir ákveðinn tíma, ætti þetta að koma út á eitt. Yfir sumartímann er mögulegt að stunda útilegur á minni bátum með kerfi þetta. Mið- að við 30 rúmlesta bát má reikna með 4 mönn- 26 — ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.