Ægir

Volume

Ægir - 01.02.1973, Page 22

Ægir - 01.02.1973, Page 22
LÖG OG REGLUGERÐIR Ráðstafanii* vegna gen gisbrey tingar L Ö G uui ráðstafanir vegna ákvörð- unar Seðlabanka Islands um nýtt gengi íslenzkrar krónu. - <*í.*u*sí 1. gr. Hafi innflytjandi vöru af- hent skjöl til tollmeðferðar fyrir 18. desember 1972, sem eru að öllu leyti fullnægjandi til þess að hægt sé að toll- afgreiða hana þegar í stað, þá skal miða gjöld af henni við það gengi, sem í gildi var, er bankar lokuðu 15. desember (gamla gengið), en þó því að- eins, að tollafgreiðslu sé lokið fyrir 30 desember 1972. Tollafgreiða skal vöru, sem afhent hefur verið innflytj- anda með leyfi tollyfirvalda gegn tryggingu fyrir greiðslu aðflutningsgjalda (sbr. 15. gr. tollskrárlaga), á grundvelli gamla gengisins, enda eigi fullnaðartollafgreiðsla sér stað fyrir febrúarlok 1973. 2. gr. Þá er skilað er til banka gjaldeyri fyrir útfluttar sjáv- arafurðir framleiddar fyrir 1. janúar 1973, skal hann greidd- ur útflytjanda á gamla geng- inu. Ríkisstjórnin kveður nán- ar á um, til hvaða afurða þetta ákvæði skuli taka, og eru ákvarðanir hennar þar að lút- andi fullnaðarúrksurðir. Mismunur andvirðis skilaðs gjaldeyris á gamla genginu og andvirðis hans á hinu nýja gengi, skv. 1. málsgr., skal færður á sérstakan reikning á nafni ríkissjóðs í Seðlabank- anum. Fé, sem á reikninginn kemur, skal ráðstafað af rík- isstjórninni í þágu sjávarút- vegsins og sjóða hans. Ríkisstjórninni er heimilt að ákveða, að þá er skilað er til banka gjaldeyri fyrir út- fluttar iðnaðarvörur fram- leiddar fyrir 1. janúar 1973, skuli hann greiddur útflytj- anda á gamla genginu. Ríkis- stjórnin kveður nánar á um, til hvaða vara þetta ákvæði skuli taka, og eru ákvarðanir hennar þar að lútandi fulln- aðarúrskurðir. Mismunur and- virðis skilaðs gjaldeyris á gamla genginu og andvirðis hans á hinu nýja gengi, skv. þessari málsgr., skal færður á sérstakan reikning á nafni ríkissjóðs í Seðlabankanum. Ríkisstjórninni er heimilt að ákveða, að gengismismunur, sem myndast kann við kaup á gjaldeyri eftir gildistöku þess- ara laga vegna verksamninga við erlenda aðila, að því leyti, sem verkin hafa verið unnin fyrir setningu þessara laga, skuli færður á sérstakan reikning ríkissjóðs við Seðla- bankann. Fé, sem fært er á reikninga ríkissjóðs skv. 3. og 4. málsgr., skal ráðstafað af ríkisstjórn- inni í þágu iðnaðarins og sjóða hans. 3. gr. Annar málsliður 1. gr. laga nr. 20 16. apríl 1962 um breyt- ing á lögum nr. 10 29. marz 1961, um Seölabanka íslands, orðist svo: Kaup- og sölugengi má ekki vera meira en 2}4% undir eða 2i/4% yfir stofngengi. 4. gr. Á gengisbreytingarreikning við Seðlabankann, sem stofn- aður var skv. 5. gr. laga nr. 69 frá 25. nóvember 1967, skal færa þann gengismun, er verð- ur vegna gengisbreytingarinn- ar hjá einstökum bönkum á grundvelli gengismunar milli gamla gengisins og þess geng- is, er skráð verður, er bankar opna á ný eftir gengisbreyt- inguna (nýja gengið). Við út- reikning á þessum gengismun skal taka tillit til allra eigna og skulda viðkomandi banka í erlendum gjaldeyri, þá er hið nýja gengi tekur gildi. Færsl- ur þær, sem af þessum ástæð- um þurfa að eiga sér stað milli Seðlabankans og bankanna, skulu jafnast með verðbréfa- Kaupum eða öðrum eignatil- færslum, eftir því sem nánar verður um samið milli þess- ara aðila. Innstæður og skuld- ir í krónum á nafni erlendra aðila, sem gengistryggðar eru með sérstökum samningi, þar með taldir skuldareikningar ríkissjóðs gagnvart alþjóða- stofnunum og innstæður Verð- jöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins, teljast erlendur gjaldeyrir í þessu sambandi, og sama gild- ir um gulleign Seðlabankans, sérstök dráttarréttindi og mót- virði þeirra. Nú hefur bankaábyrgð til handa erlendum aðila verið greidd erlendis, en ekki greidd í íslenzkum banka fyrr en eft- ir að hið nýja gengi tekur gildi, og skal hún þá gerð upp á hinu nýja gengi. Ákvæði þetta gildir ekki um gjaldfalln- ar greiðslufrestsábyrgðir, þeg- 38 —• Æ GIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.