Ægir - 01.02.1973, Síða 17
FISKVERÐ
VorA á l'iskbohiuni og slóffi.
Yfirnefnd verðlagsráðs hefur ákveðið eftir-
farandi lágmarksverð á fiskbeinum, fiskslógi og
heilum fiski til mjölvinnslu frá 1. janúar til 31.
maí 1973:
a) Þegar selt er frá fiskvinnslustöðv-
um til fiskmjölsverksmiðja:
Fiskbein og heill fiskur, annar en
síld, loðna, karfi og steinbítur,
hvert kg ........................... kr. 3.20
Karfabein og heill karfi, hvert kg — 3.60
Steinbítsbein og heill steinbítur,
hvert kg ............................. — 2.08
Fiskslóg, hvert kg ................... — 1.44
b) Þegar heill fiskur er seldur beint
fi'á fiskiskipum til fiskmjölsverk-
smiðja:
Fiskur, annar en síld, loðna, karfi
og steinbítur, hvert kg.............. kr. 2.91
Karfi, hvert kg...................... — 3.27
Steinbítur, hvert kg ................ — 1.89
Verðið er miðað við, að seljendur skili framan-
greindu hráefni í verksmiðjuþró.
Karfabeinum skal haldið aðskildum.
Reykjavík, 16. janúar 1973.
Verðlagsráð sjávarútvegsins.
' ,‘l-ð á ra>kj u.
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins hefur
akveðið eftirfarandi lágmarksverð á rækju frá 1.
janúar til 31. maí 1973.
Rækja, óskelflett í vinnsiuhæfu ástandi:
Stór rækja, 220 stk. í kg eða færri
4.55 gr hver rækja eða stærri), hvert
kg ................................ kr. 31.00
Smá rækja, 221 stk. til 350 stk. í kg
(2.85 gr til 4.55 gr hver rækja),
hvert kg .......................... — 18.00
Verðið er miðað við, að seljandi skili rækju á
flutningstæki við hlið veiðiskips.
Verði verulegar breytingar á innflutningstoll-
um á rækjuafurðum í viðskiptalöndunum, er full-
trúum í Verðlagsráði heimilt að segja verðinu upp
með viku fyrirvara.
Reykjavík, 19. janúar 1973.
Verðlagsráð sjávarútvegsins.
Veró á loónu.
Verðlagsráð sjávarútvegsins og yfirnefnd þess
hafa ákveðið eftirfarandi lágmarksverð á loðnu,
sem veidda er við ísland frá 1. janúar til 15. maí
1973.
Fersk loðna til beitu:
Hvert kg ........................ kr. 6.00
Verð á ferskri loðnu til beitu miðast
við loðnu upp til hópa.
Fersk loðna til frystingar:
Hvert kg ........................ kr. 7.00
Verð á loðnu til frystingar miðast við það magn,
sem fer til frystingar. Vinnslumagn telst innveg-
in loðna að frádregnu því magni, er vinnsiustöðv-
arnar skila í verksmiðjur. Vinnsiustöðvarnar
skulu skila úrgangsloðnu í verksmiðjur seljendum
að kostnaðarlausu. Óheimilt er að dæia framan-
greindrí loðnu úr skipi.
Verðið er miðað við loðnuna komna á flutn-
ingstæki við hlið veiðiskips.
Loðna til bræðshi:
A. Frá og með 1. janúar til 28. febr-
úar, hvert kg................. kr. 1.96
Verð þetta gildir um það loðnu-
magh, sem komið er í skipi að
löndunarbryggju fyrir kl. 24.00
þann 28. febrúar.
B. Frá og með 1. marz til 15. maí,
hvert kg ..................... — 1.76
Verðið er miðað við loðnuna komna á flutnings-
tæki við hlið veiðiskips eða löndunartæki verk-
smiðju.
Verð þetta er við það miðað, að verksmiðjur
greiði 15 aura af hverju kg í sérstakan flutn-
ingasjóð, sem ákveðið er að stofna til þess að
greiða fyrir dreifingu loðnuaflans á vinnslustaði,
þannig að þá komi greiðslur til viðbótar við ofan-
greint verð, misháar eftir fjariægð frá veiðisvæði
til löndunarhafnar.
Viðbótargreiðslur þessar verða samkvæmt sér-
stökum reglum, sem stjórn flutningasjóðsins
ákveður.
Með stjórn flutningasjóðsins fer nefnd sú, sem
fjalla skal um loðnulöndun samkvæmt lögum nr.
102/1972 um skipulag á löndun á loðnu til bræðslu.
Reykjavík, 6. febrúar 1973.
Verðlagsráð sjávarútvegsins.
Æ G I R — 33